Formaður VR: „Allar uppsagnir eru náttúrulega bara ömurlegar“

Hópuppsögn Eflingar kom formanni VR á óvart og segi hann uppsögnina ömurlega. Hann hefur boðað stjórn VR til aukafundar á morgun vegna málsins en á ekki sérstaklega von á að stefnubreyting verði gerð á íhlutun í deilumálum einstakra félaga.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Auglýsing

Hóp­upp­sögn Efl­ingar kom Ragn­ari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, á óvart og segir hann hana ömur­lega. Um tíu starfs­menn á skrif­stofu Efl­ingar eru í VR og boðað hefur verið til auka­fundar í stjórn VR á morgun vegna máls­ins. „Allar upp­sagnir eru nátt­úru­lega bara ömur­leg­ar,“ segir Ragnar Þór í sam­tali við RÚV.

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, lagði til á stjórn­ar­fundi félags­ins í vik­unni að öllu starfs­­fólki Efl­ingar yrði sagt upp störf­­um. Til­­lagan var lögð fram og sam­­þykkt af átta manna meiri­hluta B-lista undir for­ystu Sól­­veigar Önnu. Hún segir að staðið hafi verið rétt að ferl­inu.

Hóp­upp­sögnin hefur verið gagn­rýnd harð­lega, meðal ann­ars af Drífu Snæ­dal for­seta ASÍ. Heldur stóð á við­brögðum innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til að byrja með en í gær sagði Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, í sam­tali við RÚV að hóp­upp­sögn Efl­ingar hefði komið honum á óvart. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, tekur í sama streng í dag, einnig í sam­tali við RÚV.

Auglýsing

Bjóst við breyt­ingum en ekki þessu

Ragnar Þór segir að búast mætti við breyt­ingum eftir sigur Sól­veigar Önnu í for­manns­kjöri Efl­ingar fyrr á þessu ári sem var, að hans sögn, risa­stórt upp­gjör innan félags­ins. Hann átti samt ekki von á þessu.

VR hefur tekið á móti því félags­fólki sem starfar á skrif­stofu Efl­ing­ar, sem eru um tíu tals­ins, og tryggt að þau fái bestu mögu­legu þjón­ustu og stuðn­ing, að sögn Ragn­ars.

Ræða mögu­lega stefnu­breyt­ingu á stjórn­ar­fundi

Ragnar hefur boðað til auka­fundar í stjórn VR á morg­un, laug­ar­dag, til að ræða hóp­upp­sögn­ina. Hann segir að stjórn VR hafi hingað til ekki viljað íhlut­ast í þær deilur og átök sem hafa verið á skrif­stofu Efl­ingar en að hann hafi fundið fyrir þrýst­ingi, bæði á sig og félag­ið, að koma með yfir­lýs­ing­ar. Það segir hann hafa verið erfitt þar sem VR sé í við­kvæmri stöðu gagn­vart félags­mönnum sem félagið er að verja hags­muni fyr­ir.

Á fund­inum verður rætt hvort gerð verði stefnu­breyt­ing hvað þetta varð­ar, það er hvort íhlut­ast verði varð­andi mál­efni Efl­ing­ar, og verður það í höndum stjórnar VR að ákveða það. Íhlut­unin yrði þá fólgin í því að hafa skoð­anir á mál­inu, hvort sem það verður í formi yfir­lýs­ingar eða ekki, að sögn Ragn­ars Þórs. Hann á þó ekki sér­stak­lega von á að svo verði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent