Segir að staðið hafi verið rétt og faglega að ferlinu

Formaður Eflingar segir það mjög leitt að minnihluti stjórnar félagsins hafi ekki virt trúnað og kosið að leka upplýsingum í fjölmiðla meðan á samráði við trúnaðarmenn starfsfólks skrifstofu Eflingar stóð. Því er nú lokið með samkomulagi.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Auglýsing

Sam­komu­lag hefur náðst við trún­að­ar­menn starfs­fólks skrif­stofu Efl­ingar um fram­kvæmd á skipu­lags­breyt­ingum á vinnu­staðn­um, að því er fram kemur í yfir­lýs­ingu frá Bar­áttu­list­an­um.

Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar seg­ist í yfir­lýs­ing­unni lýsa yfir ánægju með að sam­ráð við trún­að­ar­menn hafi skilað sér í sam­komu­lagi.

„Staðið hefur verið rétt og fag­lega að ferl­inu. Það er hins vegar mjög leitt að minni­hluti stjórnar hafi ekki virt trúnað og kosið að leka upp­lýs­ingum í fjöl­miðla meðan á sam­ráði stóð. Van­stillt umræða hefur svo farið úr bönd­unum síð­ustu sól­ar­hringa þar sem ýmsir hafa sett sig á háan hest án þess að vita nokkuð um mál­ið. Er það engum til sóma,“ segir hún.

Auglýsing

Sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni fela breyt­ing­arnar í sér upp­sögn ráðn­ing­ar­samn­inga allra starfs­manna og aug­lýs­ingu allra starfa. Fram kemur að ný ráðn­ing­ar­kjör verði inn­leidd, með gagn­sæi og jafn­rétti að leið­ar­ljósi, og starfað verði undir nýju skipu­lagi með breyttum hæfn­is­kröfum og verka­skipt­ingu. Breyt­ing­arnar miði að bættri þjón­ustu við félags­menn og auk­inni skil­virkni í rekstri.

Starfs­fólki veitt svig­rúm til að sækj­ast eftir öðrum störfum á upp­sagn­ar­fresti

Greint er frá því að sam­ráð við trún­að­ar­menn hafi haf­ist að loknum stjórn­ar­fundi síð­ast­lið­inn mánu­dag þar sem til­laga um skipu­lags­breyt­ingar var sam­þykkt.

„Sam­kvæmt lögum ber að við­hafa trúnað um sam­ráð­ið, sem lauk síð­degis í gær, með sam­komu­lagi eins og fyrr seg­ir. Var í kjöl­far þess í gær­kvöldi send til­kynn­ing til Vinnu­mála­stofn­unar og öllum starfs­mönnum Efl­ingar sent upp­sagn­ar­bréf.

Sam­komu­lagið við trún­að­ar­menn felur í sér að starfs­menn sem þess óska verða leystir undan vinnu­skyldu síð­asta mánuð upp­sagn­ar­frests. Öllum starfs­mönnum er tryggður að lág­marki 3 mán­aða upp­sagn­ar­frest­ur, einnig þeim sem ekki hafa áunnið sér hann. Efl­ing mun falla frá rétt­indum og skyldum í til­vikum þar sem starfs­maður óskar að ganga í annað starf áður en upp­sagn­ar­frestur er lið­inn. Starfs­fólki verður að auki veitt svig­rúm til að sækj­ast eftir öðrum störfum á upp­sagn­ar­fresti óski það þess, t.d. fara í atvinnu­við­töl á vinnu­tíma,“ segir í yfir­lýs­ingu Bar­áttu­list­ans.

Seg­ist hafa fengið upp­sagn­ar­bréf klukkan tvö í nótt

Mikil ólga hefur verið í sam­fé­lags­um­ræð­unni vegna upp­sagn­anna og hafa aðrir verka­lýðs­for­ingjar og starfs­fólk Efl­ingar tjáð sig opin­ber­lega um mál­ið.

Vala Árna­dótt­ir, starfs­­maður Efl­ing­­ar, sagði til að mynda frá því á Face­­book-­­síðu sinni í morgun að hún hefði fengið upp­­sagn­­ar­bréf frá lög­­­manni úti í bæ um klukkan 2 í nótt. Hún er í veik­inda­­leyfi í kjöl­far slyss og var búin að tjá Efl­ingu að hún myndi ekki snúa aftur til starfa hjá stétt­­ar­­fé­lag­inu en mán­uði eftir að hún lenti í slys­inu síð­­asta sumar var henni til­­kynnt að félags- og þró­un­­ar­­svið Efl­ing­­ar, sem hún starf­aði hjá sem teym­is­­stjóri félaga­­mála, hefði verið lagt niður „vegna skipu­lags­breyt­inga” og afþakk­aði Vala starf á nýju sviði.

Vala seg­ist vegna sinna veik­inda og vegna fjöl­­skyldustengsla við Sól­­veigu Önnu ekk­ert hafa viljað tjá sig um mál­efni Efl­ingar út á við til þessa en segir að nú sé nóg kom­ið.

Hún segir að stuttu eftir að sviðið sem hún starf­aði hjá hafi verið lagt niður hafi „skrif­­stofa félaga­­mála“ verið stofnuð og Viðar Þor­­steins­­son settur þar yfir, en skrif­­stofa hans og starfs­­fólk hafi þjónað sama til­­­gangi og félags- og þró­un­­ar­­svið gerði áður, þannig að skipu­lags­breyt­ingin hafi verið nán­­ast engin og ekki til neins fallin nema að að „losa sig við sumt starfs­­fólk“ og „setja Viðar yfir ein­ingu sem hann myndi geta sætt sig við eftir að fjölda kvart­anna í hans garð gerðu honum erfitt um vik að starfa áfram sem fram­­kvæmda­­stjóri.“

Vala seg­ist hafa stutt þær konur sem „kvört­uðu undan fram­komu og ein­elt­istil­­burðum Við­­ars“ og segir að hún hafi beðið Sól­­veigu Önnu um að standa með þeim líka, fyrir ári síð­­­an. Við­brögðin hafi hins vegar verið þau að segja upp sviðs­­stjóra, sem Sól­­veig og Viðar hafi talið að ætti upp­­tökin að kvört­un­unum í garð Við­­ars.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent