Sorgleg nýmæli að forseti ASÍ „ráðist á verka- og láglaunafólk“ í stjórn stéttarfélags

Baráttulistinn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Drífu Snædal forseta ASÍ um uppsagnir í Eflingu.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar mót­mælir „órök­studdum yfir­lýs­ingum for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands um lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir stjórnar Efl­ingar varð­andi innri skipu­lags­mál á skrif­stofum félags­ins“.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Bar­áttu­list­anum sem send var út í dag. Drífa Snæ­dal for­seti ASÍ gagn­rýndi í morgun ákvörðun stjórnar Efl­ingar að segja upp öllu starfs­fólki félags­ins.

Í yfir­lýs­ingu Bar­áttu­list­ans segir að ákvörðun stjórnar Efl­ingar um breyt­ingar sem nú standa yfir sé tekin á skýrum og mál­efna­legum grunni. Séu þær breyt­ingar hugs­aðar til að inn­leiða sam­ræmi, jafn­rétti og gagn­sæi í launa­kjörum starfs­fólks, inn­leiða eðli­legt bil milli hæstu og lægstu launa á skrif­stof­un­um, og gera aðrar löngu tíma­bærar og nauð­syn­legar breyt­ingar á skipu­lagi.

„For­seti Alþýðu­sam­bands­ins hefur ekki haft fyrir því að leita upp­lýs­inga eða skýr­inga frá for­manni eða stjórn Efl­ing­ar, en hikar þó ekki við að for­dæma opin­ber­lega þeirra störf í þágu félags­fólks í Efl­ingu. Það eru sorg­leg nýmæli að for­seti Alþýðu­sam­band­ins ráð­ist á verka- og lág­launa­fólk í stjórn eins af aðild­ar­fé­lögum ASÍ með þessum hætt­i,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Allt starfs­fólk hvatt til að sækja um aug­lýst störf

Bar­áttu­list­inn lýsti því yfir í kosn­inga­bar­áttu sinni að hann myndi gera nauð­syn­legar breyt­ingar á rekstri skrif­stofu Efl­ing­ar. „Við það lof­orð verður stað­ið. Í því ferli sem nú stendur yfir er lögum og vinnu­brögðum sem við eiga fylgt í einu og öllu. Óhjá­kvæmi­legt er að segja upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ing­um, en allt starfs­fólk verður hvatt til að sækja um aug­lýst störf að nýju.

Yfir stendur lög­bundið sam­ráð við full­trúa starfs­fólks sem lögum sam­kvæmt ber að fara fram í trún­aði. For­maður Efl­ingar harmar að aðilar hafi rofið trún­að, lekið gögnum í fjöl­miðla og tjáð sig þar með óvar­legum hætti áður en því sam­ráðs­ferli lauk,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent