Bandaríkjamenn ákveða að taka við 100 þúsund flóttamönnum 2017

h_51903784-1.jpg
Auglýsing

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum hafa skuld­bundið sig til að taka við 100 þús­und flótta­mönnum á ári frá árinu 2017, og er það einkum horft til flótta­manna frá Sýr­landi, Írak og Afgannist­an. John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, greindi frá þessu í dag eftir fund með þýskum emb­ætt­is­mönn­um.

Banda­ríkin er land þar sem fólk fær annað tæki­færi og getur fundin von um betra líf,“ sagði Kerry þegar hann til­kynnti um auk­ingu á mót­töku­kvóta flótta­manna í land­inu. Þrátt fyrir aukn­ing­una verður mikið lagt upp úr því að styrkja eft­ir­lit og skoðun á bak­grunns­upp­lýs­ingar þeirra sem óska eftir því að fá að koma til lands­ins, að því er fram á vef New York Times.

Breyt­ingin felur í sér hækkun á flótta­manna­kvót­anum úr 70 þús­und í 100 þús­und, en Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, greindi frá því í síð­ustu viku að stjórn­hygð­ust taka á móti 10 þús­und flótta­mönnum frá Sýr­landi á næsta ári, til við­bótar við það sem þegar hafði verið ákveð­ið.

Auglýsing

Vanda­málið sem snýr að flótta­mönnum er gríð­ar­legt að umfangi, en talið er að allt að 25 millj­ónir manni séu nú flótta frá stríðs­hrjáðum svæðum Sýr­lands, Íraks og Afganistan, og hefur mynd­ast mikið mann­haf víða í Evr­ópu við landa­mæri, þar sem flótta­menn freista þess að kom­ast á nýjan byrj­un­ar­reit, og hefja nýtt líf.

Eins og greint var frá í gær hafa stjórn­völd á Íslandi ákveðið setja um tvo millj­arða króna í mála­flokk sem snýr að mót­töku flótta­manna, og verður gripið til aðgerða eins fljótt og kostur er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None