Borgarfulltrúar segja þá spurningu vakna hvort lögregla megi fara á svig við lög

Um 15 prósent bifreiða í borginni voru komnar á nagladekk strax um miðjan október. Fulltrúar borgarstjórnarmeirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði segja óheppilegt að löggan gefi það út að ekki verði sektað fyrir notkun nagladekkja.

Rætt var um nagladekk í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar í gær.
Rætt var um nagladekk í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar í gær.
Auglýsing

Full­trúar Sam­fylk­ing­ar, Fram­sókn­ar, Pírata og Við­reisnar í umhverf­is- og skipu­lags­ráði borg­ar­innar telja „óheppi­legt að lög­reglan lýsi því yfir hvað eftir annað að ekki verði sektað fyrir fyrir notkun nagla­dekkja áður en nagla­dekkja­tíma­bilið hefst“ og segja að sú spurn­ing vakni óhjá­kvæmi­lega „hvort lög­reglan hafi heim­ild til að fara á svig við lög­in“.

Þetta kemur fram í bókun full­trú­anna frá fundi umhverf­is- og skipu­lags­ráðs borg­ar­innar í gær, en þar var rætt um nagla­dekkja­notkun í Reykja­vík­ur­borg og það átak sem staðið hefur yfir und­an­farnar vik­ur, með aug­lýs­ingum og fræðslu­efni, til að beina íbúum fremur í átt að öðrum kostum en nagla­dekkjum við val á vetr­ar­dekkj­um.

Fleiri á nagla­dekkjum snemma hausts nú en árið 2001

Í gögnum sem lögð voru fyrir fund­inn kom fram að taln­ing sem borgin fól verk­fræði­stof­unni Eflu að fram­kvæma á nagla­dekkja­notkun í viku 42 (17. októ­ber til 23. októ­ber) sýndi að 15 pró­sent bif­reiða í borg­inni voru komnar á nagla­dekk.

Auglýsing

Þetta er mun hærra hlut­fall en á sömu viku árið 2001, er ein­ungis þrjú pró­sent bif­reiða voru komin á nagla­dekk, en frek­ari sam­an­burður á milli ára um stöð­una á þessum tíma árs virð­ist ekki til stað­ar.

Í kynn­ing­unni sem lögð var fyrir kjörna full­trúa af starfs­mönnum borg­ar­innar kom þó fram að byrj­unin á þessum vetri teld­ist ekki góð, með til­liti til nagla­dekkja­notk­un­ar.

Nagla­dekkja­notkun hefur auk­ist frá 2016-17

Sam­kvæmt nagla­dekkja­taln­ingum sem fram­kvæmdar voru fyrir Reykja­vík­ur­borg síð­asta vetur voru rétt um 40 pró­sent bif­reiða í borg­inni á nögl­um, frá miðjum nóv­em­ber og fram í byrjun mars hið minnsta. Þetta hlut­fall hefur hækkað frá vetr­inum 2016-17, er um 32 pró­sent bif­reiða í borg­inni voru á nöglum yfir vet­ur­inn.

Borgin hefur verið með auglýsingaherferð í gangi síðustu vikur, til þess að hvetja til minni nagladekkjanotkunar.

Ekki er ósenni­legt að stór­auk­inn fjöldi bíla­leigu­bíla í umferð frá þeim tíma eigi þátt í þess­ari aukn­ingu, en borgin sjálf hefur nefnt það sem lík­lega ástæðu fyrir auknu hlut­falli bíla á nagla­dekkjum síð­ustu ár.

Í bókun full­trúa meiri­hlut­ans í ráð­inu sagði að nagla­dekkja­notkun hefði því miður auk­ist veru­lega síð­ustu árin og að ljóst væri að mikil notkun þeirra í Reykja­vík hefði alvar­legar afleið­ingar í för með sér, þar sem þau væru stór áhrifa­þáttur í svifryks­mengun og valdi á bil­inu 20-30 sinnum meiri svifryks­mengun en venju­leg dekk, auk þess sem veru­legur kostn­aður skap­ist vegna slits á mal­bik­i.

Í bókun frá full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði að þessa nei­kvæðu þróun í notkun nagla­dekkja mætti „lík­lega rekja til óánægju með frammi­stöðu Reykja­vík­ur­borgar við snjó­ruðn­ing í húsa­götum síð­asta vet­ur, ekki síst í efri byggð­um“ og þá þjón­ustu þyrfti að bæta.

Einnig sagði í bókun full­trúa flokks­ins að draga mætti „veru­lega úr svifryks­mengun með því að bæta eig­in­leika útlagðs mal­biks í borg­inni í því skyni að gera það slitsterkara“ og að lokum þyrfti að bæta fræðslu um skað­semi nagla­dekkja­notk­unar í því skyni að draga úr henn­i“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent