Breytingar á yfirstjórn, meðal annars forstjóraskipti, kostuðu N1 117 milljónir króna

n1.jpg
Auglýsing

Breyt­ingar á yfir­stjórn N1 kost­uðu félagið 117 millj­ónir króna á fyrsta árs­fjórð­ungi. Þar er ekki greindur niður kostn­aður á hverja breyt­ingu á yfir­stjórn en þar skiptir mestu máli upp­sögn for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Egg­erts Bene­dikts Guð­munds­son­ar, í febr­úar 2015.  Árs­laun hans voru 55,9 millj­ónir króna á árinu 2014. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi N1 sem var birtur í gær.

Þrír úr fram­kvæmda­stjórn félags­ins hættu störfum hjá N1 á árs­fjórð­ungn­um. Fyrst hætti Hall­dór Harð­ar­son, sem hafði verið fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­sviðs, í byrjun febr­úar til að ger­ast mark­aðs­stjóri Arion banka. Ekki var ráð­inn nýr fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­sviðs heldur var búin til ný staða mark­aðs­stjóra sem var ekki hluti af yfir­stjórn. Við því starfi tók Þyrí Dröfn Kon­ráðs­dótt­ir, sem hafði verið sér­fræð­ingur á mark­aðs­sviði N1, í mars síð­ast­liðn­um.

Egg­ert Bene­dikt Guð­munds­son, sem hafði verið for­stjóri N1 frá árinu 2012, komst skömmu síðar að sam­komu­lagi um að láta af störfum hjá félag­inu. Við starf­inu tok Egg­ert Þór Krist­ó­fers­son, fyrrum fjár­mála­stjóri N1. Mar­grét Guð­munds­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður N1, sagði í sam­tali við vb.is að for­stjóra­skiptin hefðu verið gerð til að lækka kostnað við yfir­stjórn hjá félag­inu. Í árs­reikn­ingi N1 fyrir árið 2014 kom fram að Egg­ert Bene­dikt hafi verið með 55,9 millj­ónir króna í árs­laun á því ári, eða 4,7 millj­ónir króna á mán­uði. Egg­ert Þór, sem tók við for­stjóra­starf­inu, var hins vegar með 33,8 millj­ónir króna í árs­laun árið 2014 fyrir að sinna starfi fjár­mála­stjóra. ­Pétur Haf­steins­son var í apríl ráð­inn nýr fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs N1 og tók þar með við því starfi sem Egg­ert Þór hafði gengt.

Auglýsing

Ing­unn Sveins­dótt­ir, sem hafði verið fram­kvæmda­stjóri ein­stak­lings­sviðs N1, sagði síðan upp störfum í byrjun mars. Guðný Rósa Þor­varð­ar­dóttir var ráð­inn í starfið í apr­íl.

Í árs­hluta­reikn­ingnum segir orð­rétt: „Breyt­ingar voru einnig gerðar á fram­kvæmda­stjórn og er heild­ar­kostn­aður við breyt­ingar á yfir­stjórn félags­ins 117 m.kr. Kostn­að­ur­inn var gjald­færður að fullu á tíma­bil­in­u.“ Launa­kostn­aður án breyt­inga við yfir­stjórn félags­ins lækk­aði hins vegar um 7,6 pró­sent á milli ára. Fram­legð af vöru­sölu jókst um 12,8 pró­sent, mark­aðs­hlut­deild N1 jókst á árs­fjórð­ungnum og hagn­aður fyr­ir­ af­skriftir og fjár­magnsliði var 248 millj­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None