Svandís Svavarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp sem hefur það hlutverk að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum, sem hefur verið til nokkurrar umræðu í dag eftir að evrópsk dýraverndarsamtök birtu myndskeið af slæmri meðferð hrusss á YouTube undir lok síðasta árs.
Hópnum er ætlað að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kring um hana, samkvæmt því sem segir í tilkynningu sem birt var á vef stjórnarráðsins í dag.
Ráðherra kallaði eftir tilnefningum í starfshópinn frá Matvælastofnun og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Iðunn Guðjónsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er formaður hópsins, en hún var skipuð af ráðherra án tilnefningar.
Einnig sitja í hópnum þau Sigríður Björnsdóttir, yfirdýralæknir í hrossasjúkdómum hjá Matvælastofnun, sem MAST tilnefndi til setu í hópnum og Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, sem tilnefndur er af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.
„Ráðherra hefur falið hópnum að funda með hagaðilum auk þess sem almenningi mun gefast kostur á að tjá sig um störf og tillögur hópsins á Samráðsgátt stjórnvalda þegar þær liggja fyrir. Starfshópurinn mun hefja störf á næstu dögum og er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. júní,“ segir í tilkynningu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins í dag.
Þar er jafnframt tekið fram að verkefni starfshópsins séu með öllu aðskilin rannsókn Matvælastofnunar, sem rannsakar um þessar mundir meint alvarleg brot á velferð blóðtökuhryssa.