Crowberry Capital stofnar stærsta vísisjóð á Íslandi

Sprota- og vaxtasjóðurinn Crowberry Capital hefur fjármagnað nýjan 11,5 milljarða króna vísisjóð. Á meðal þeirra sem fjármagna sjóðinn er Evrópski fjárfestingasjóðurinn og Davíð Helgason, stofnandi Unity Technologies.

Hekla Arnardóttir, Helga Valfells og Jenný Ruth Hrafnsdóttir hjá Crowberry Capital.
Hekla Arnardóttir, Helga Valfells og Jenný Ruth Hrafnsdóttir hjá Crowberry Capital.
Auglýsing

Nýr vís­i­sjóður á vegum íslenska sprota- og vaxta­sjóðs­ins Crowberry Capi­tal hefur lokið fjár­mögn­un. Sjóð­ur­inn ber heitið Crowberry II og nemur um 11,5 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu Bloomberg sem birt­ist í morg­un.

Sam­kvæmt frétt­inni mun sjóð­ur­inn ein­beita sér að fjár­fest­ingum í nor­rænum sprota­fyr­ir­tækjum í tækni­geir­anum á fyrstu stigum fjár­mögn­unar þeirra. Einnig mun sjóð­ur­inn styrkja frum­kvöðla­starf­semi sem leidd er áfram af kon­um.

Davíð Helga­son á meðal fjár­festa

Evr­ópski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn (EIF), sem er í eigu evr­ópskra banka og er stærsti fag­fjár­festir vís­i­sjóða í Evr­ópu, leiðir fjár­fest­ing­una með fjórð­ungs­hlut í Crowberry II. Hins vegar koma aðrir fjár­festar einnig að, þar á meðal Davíð Helga­son, stofn­andi hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Unity Technologies.Í síð­asta vor­hefti Vís­bend­ingar má finna ítar­legt við­tal við Dav­íð, þar sem hann sagð­ist ætla aftur til Íslands og ein­beita sér að fjár­fest­ingum hér­lend­is.

Auglýsing

Crowberry Capi­tal var stofnað af Heklu Arn­ar­dótt­ur, Helgu Val­fells og Jennýju Ruth Hrafns­dóttur árið 2016, en þær unnu áður hjá Nýsköp­un­ar­sjóði atvinnu­lífs­ins. Sjóð­ur­inn fjár­magnar nú fjölda íslenskra sprota­fyr­ir­tækja, líkt og leikja­fram­leið­end­urna 1939 Games og Main­frame, fjár­tækni­fyr­ir­tækin Lucinity og Moner­ium og gagna­stjórn­un­ar­fyr­ir­tækið Avo.

Í sam­tali við Bloomberg segir Crowberry að þær vilji stuðla að fjöl­breytni í nýsköp­un­ar­um­hverf­inu, en 5 af þeim 15 fyr­ir­tækjum sem sprota­sjóð­ur­inn fjár­magnar hafa konu í stöðu fram­kvæmda­stjóra. Crowberry segir svo að mikil gróska væri í nýsköp­un­ar­um­hverf­inu hér­lendis þessa stund­ina. Sjóð­ur­inn bætti einnig við að kallað væri eftir því að Norð­ur­löndin legðu sitt af mörkum til að taka þátt í þeim mikla vexti sem á sér stað í staf­rænni þróun á heims­vísu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent