Dagur ætlar að bjóða sig aftur fram

Dagur B. Eggertsson ætlar að gefa kost á sér í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara í maí. Þessu greindi hann frá í viðtali á Rás 2 í morgun.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Auglýsing

Dag­ur. B Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, ætlar að gefa kost á sér í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum í maí. Þessu greindi hann frá í við­tali á Rás 2 í morg­un. Dagur var í sótt­kví í síð­ustu viku og sagð­ist að því til­efni ætla að bíða með yfir­lýs­ingar um fram­hald sitt í póli­tík þar til henni lyki.

Í við­tal­inu í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun sagð­ist Dagur mögu­lega hafa tekið aðra ákvörðun um fram­boð sitt fyrir ári síðan en þá varð hann fyrir harðri gagn­rýni með aug­lýs­ingum fjár­sterkra aðila sem beindust sér­stak­lega að hon­um. Einnig var skotið á bíl hans fyrir utan heim­ili hans. Árásin hafði meiri áhrif á hann en hann vildi við­ur­kenna í fyrstu. Í við­tal­inu sagði hann þau hjónin hafa hætt að fara í göngu­ferðir á kvöldin í kjöl­far henn­ar.

Auglýsing

Dagur hefur setið í borg­­­ar­­­stjórn lengur en nokkur annar sem þar situr nú, eða frá árinu 2002, fyrst fyrir Reykja­vík­­­­­ur­list­ann en síðan fyrir Sam­­­fylk­ing­una. Áður en hann varð borg­­ar­­stjóri árið 2014 hafði hann einnig verið borg­­­ar­­­stjóri í hund­rað daga, frá októ­ber 2007 til jan­úar 2008.

Eina skiptið á ferli Dags sem hann hefur setið í minn­i­hluta er kjör­­­tíma­bilið 2006 til 2010, að und­an­­­skildum áður­­­­­nefndum 100 dög­um, en miklar svipt­ingar voru í borg­­­ar­­­stjórn á þeim árum og alls fjórir meiri­hlutar mynd­að­­­ir.

Sam­­fylk­ingin hefur ákveðið að bind­andi flokksval verði notað til að velja í efstu sex sætin á lista flokks­ins í Reykja­vík, en það mun fara fram 12.-13. febr­­ú­­ar. Atkvæð­is­rétt í flokksval­inu hafa bæði flokks­­menn og stuðn­­ings­­menn flokks­ins, eldri en 16 ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent