Dagur ætlar ekki að bjóða sig fram til formanns – Kristrún tilkynnir á föstudag

Línur eru að skýrast í formannsbaráttunni hjá Samfylkingunni, en nýr formaður verður kosinn í október. Borgarstjórinn í Reykjavík er búinn að staðfesta það sem lá í loftinu, hann fer ekki fram. Kristrún Frostadóttir hefur boðað stuðningsmenn á fund.

Kristrún Frostadóttir og Dagur B. Eggertsson.
Kristrún Frostadóttir og Dagur B. Eggertsson.
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík og fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, mun ekki bjóða sig fram til for­mennsku í flokknum á kom­andi lands­fundi hans, sem fram fer í októ­ber. Þetta stað­festir Dagur í Frétta­blað­inu í dag. 

Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur legið undir feldi og íhugað for­manns­fram­boð frá því í júní. Hún hefur boðað til fundar með stuðn­ings­mönnum sínum á föstu­dag þar sem búist er við að hún til­kynnti að hún ætli að taka slag­inn.

Eng­inn annar hefur lýst yfir áhuga á for­manns­fram­boði í Sam­fylk­ing­unni og úr þessu búast við­mæl­endur Kjarn­ans ekki við því að Kristrún fái alvöru mót­fram­boð. 

For­mennska lang­sótt

Sá eini sem tal­inn var mögu­legur í slíkan slag var borg­ar­stjór­inn. Dagur segir hins vegar skýrt í sam­tali við Frétta­blaðið að hann úti­loki fram­boð til for­manns. „Ég hef auð­vitað skynjað mik­inn stuðn­ing. Fólk hefur kallað eftir nýrri rík­is­stjórn sem yrði mynduð frá vinstri yfir á miðj­una svipað og í Reykja­vík. En ég er að hefja nýtt kjör­tíma­bil í borg­inni og á ekki sæti á þingi. Þess vegna var lang­sótt að ég byði mig fram til for­mennsku í flokkn­um.“

Þetta er í fullu sam­ræmi við það sem fram kom í frétta­skýr­ingu um stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar í Kjarn­anum 8. júlí síð­ast­lið­inn, þar sem sagði að lang­lík­eg­ast væri að Kristrún yrði næsti for­maður en að Dagur væri ekki að sýna for­manns­fram­boði neinn áhuga. 

Auglýsing
Logi Ein­ars­son, sem setið hefur lengur í for­manns­stóli Sam­fylk­ing­ar­innar en nokkur annar eða í næstu sex ár, til­kynnti í byrjun sum­ars að hann myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Hann sagð­ist við það til­efni vera sann­færður um að aðrir gætu gert betur en hann, en Sam­fylk­ingin fékk 9,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra­haust og tap­aði fylgi milli kosn­inga þrátt fyrir að hafa eytt kjör­tíma­bil­inu í stjórn­ar­and­stöðu. Það þóttu mikil von­brigði fyrir flokk­inn. 

Verður yngsti for­maður flokks­ins frá upp­hafi

Kristrún er 34 ára hag­fræð­ingur og hóf fyrst stjórn­mála­þátt­töku í fyrra, þegar hún ákvað að gefa kost á sér til að leiða annað Reykja­vík­ur­kjör­dæmið fyrir Sam­fylk­ing­una í þing­kosn­ing­unum í sept­em­ber. Áður hafði hún starfað í fjár­mála­geir­an­um.

Kristrún hefur sér­stak­lega vakið athygli und­an­farið ár fyrir að gefa jafn­að­ar­manna­stefn­unni dýpt í umræðum um efna­hags­mál. 

Raunar var byrjað að tala Kristrúnu upp sem næsta for­­mann Sam­­fylk­ing­­ar­innar nán­­ast sam­­stundis og hún gekk í flokk­inn til að bjóða fram fyrir hann í Reykja­vík í aðdrag­anda kosn­­ing­anna í fyrra. Meðal ann­­ars vegna þessa þrýst­ings fór Kristrún ein í hring­­ferð um landið fyrr á þessu ári og hélt opna fundi með fólki í þeirra heima­­byggð, á sama tíma og aðrir þing­­menn nýttu kjör­­dæma­daga til að ferð­­ast saman um landið til að hitta kjós­­end­­ur. 

Verði Kristrún næsti for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­innar verður hún lang yngst til að gegna því emb­ætti. Það met átti Árni Páll Árna­­son áður, en hann var 46 ára við emb­ætt­is­­töku (Mar­grét Frí­­manns­dótt­ir, sem var tals­­maður flokks­ins í árdaga hans var reyndar yngri, 44 ára).

Í síð­ustu könnun Gallup á fylgi stjórn­mála­flokka mæld­ist Sam­­fylk­ingin með 13,7 pró­­sent fylgi, eða 3,8 pró­­sent­u­­stigum meira en flokk­­ur­inn fékk í fyrra­haust. Það myndi þýða að flokkur yrði fjórði stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag á eftir Sjálf­stæð­is­flokki, Fram­sókn­ar­flokki og Píröt­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent