Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins veltir því fyrir sér hvort eigendur kísilversins á Bakka eigi að greiða til baka þær 4.221 milljónir króna sem hafi farið í jarðgöng, lóðaframkvæmdir og þjálfunarkostnað starfsmanna fyrirtækisins áður en þeir fjárfesti í „mengandi verksmiðju í Helguvík sem íbúarnir vilja ekki“.
Þetta kom fram í máli hans undir liðnum störf þingsins í síðastliðinni viku.
Kjarninn greindi frá því fyrr í mánuðinum að Arion banki og PCC SE, meirihlutaeigandi kísilversins PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík, hefðu undirritað viljayfirlýsingu varðandi möguleg kaup á kísilverksmiðjunni í Helguvík.
Birgir sagði í ræðu sinni að áfallasaga kísilverksmiðjunnar í Helguvík væri flestum kunn. „Þegar verksmiðjan var starfandi þurftu margir íbúar í nágrenni hennar að leita sér læknishjálpar vegna mengunar. Að lokum fór svo að reksturinn var stöðvaður og Arion banki tók verksmiðjuna yfir vegna skulda. Bankinn stefndi síðan að því að selja hana aftur og lýstu íbúar á svæðinu almennt ánægju með þau áform. Það hefur sem sagt verið mikil andstaða meðal íbúa í Reykjanesbæ við þessa verksmiðju, kannski skiljanlega.“
Vísaði hann í fréttir af viljayfirlýsingunni. „Þau áform hafa valdið hörðum viðbrögðum meðal íbúa í Reykjanesbæ sem óttast að til standi að endurreisa verksmiðjuna. Ríkissjóður eða skattgreiðendur studdu myndarlega við kísilverksmiðjuna á Húsavík á sínum tíma. Þannig borgaði ríkissjóður 3.525 milljónir í sérstök jarðgöng eingöngu fyrir verksmiðjuna, sem almenningur má ekki nota, 460 milljónir í lóðaframkvæmdir við verksmiðjuna og 236 milljónir vegna þjálfunarkostnaðar starfsmanna. Fyrirtækið fékk síðan 40 prósent afslátt af hafnargjöldum í 14 ár.
Nú dreg ég ekki úr mikilvægi kísilverksmiðjunnar á Bakka fyrir atvinnustigið í Norðurþingi en er ekki rétt, má ekki hugsa það sem svo, að fyrirtækið greiði ríkissjóði til baka þær 4.221 milljónir króna sem það fékk í styrki frá skattgreiðendum áður en það fer að fjárfesta í mengandi verksmiðju í Helguvík sem íbúarnir vilja ekki?“ spurði hann að lokum.