Eigið fé Origo margfaldast við söluna í Tempo fyrir 28 milljarða króna

Árið 2009 stofnuðu starfsmenn TM Software lítið hugbúnaðarfyrirtæki, sem nefnt var Tempo. Í dag er það metið á 85,4 milljarða króna og Origo var að selja hlut sinn í því á 28 milljarða króna. Við það fer eigið fé Origo úr níu milljörðum í 31 milljarða.

Jón Björnsson, forstjóri Origo.
Jón Björnsson, forstjóri Origo.
Auglýsing

Origo, sem er skráð á íslenskan hluta­bréfa­mark­að, gerði í gær­kvöldi skuld­bind­andi kaup­samn­ing við Diversis Tempo Hold­ings II LLC, félags á vegum banda­ríska tækni­fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins Diversis Capital, um sölu á öllum tæp­lega 40 pró­sent eign­ar­hlut félags­ins í Tempo fyrir 195 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 27,7 millj­arða króna. 

Heild­ar­virði Tempo í við­skipt­unum er áætlað um 600 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 85,4 millj­arðar króna, og sölu­hagn­aður Origo, að teknu til­liti bók­færðs virðis og kostn­að­ar, er áætl­aður 22,2 millj­arðar króna. 

Til sam­an­burðar má nefna að mark­aðsvirði Origo í heild var 30,1 millj­arður króna við lokun mark­aða í gær. Sölu­hagn­að­ur­inn af Tempo er því næstum 74 pró­sent af mark­aðsvirði félags­ins. Origo velti tæp­lega 9,3 millj­örðum króna á fyrri hluta árs­ins 2022 og hagn­að­ist um 561,6 millj­ónir króna. Eigið fé félags­ins var 8,9 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Að við­bættum væntum sölu­hagn­aði mun eigið fé Origo fara upp í um 31,1 millj­arð króna.

Auglýsing
Í til­kynn­ingu sem send var til Kaup­hallar Íslands seint í gær­kvöldi sagði að ljóst væri að salan á Tempo muni hafa umtals­verð jákvæð áhrif á efna­hags­reikn­ing Origo þar sem lausa­fjár­staða styrk­ist og geta til innri og ytri vaxtar verður umtals­verð. „Stjórn og fram­kvæmda­stjórn Origo munu vinna að til­lögu um ráð­stöfun sölu­and­virð­is­ins sem verður kynnt hlut­höfum í fram­hald­in­u.“

Stærstu hlut­hafar Origo eru líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, Birta líf­eyr­is­sjóð­ur, Stapi líf­eyr­is­sjóður og Lífs­verk. Saman eiga þessir fjórir sjóðir um 37,7 pró­sent hlut. Stærsti einka­fjár­festir­inn í Origo er Frigus II, í eigu Ágústs og Lýðs Guð­­­munds­­­sona, fyrr­ver­andi aðal­­eig­enda Exista og stærstu eig­enda Bakka­var­ar, og Sig­­­urðar Val­týs­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­stjóra Exista sem á 4,25 pró­sent hlut.

Stofnað 2009 og marg­fald­ast í virði á fjórum árum

Tempo var stofnað árið 2009, af starfs­­fólki TM Software, sem þá var dótt­ur­fé­lag Nýherja, og varð fljótt leið­andi hug­­bún­­að­­ar­­fyr­ir­tæki sem þró­aði verk­efna­­stýr­ing­­ar- og við­­skipta­hug­­búnað (B2B)  fyrir JIRA kerfið frá Atlassi­an. Um hreint íslenskt hug­vits­fyr­ir­tæki er því að ræða.

Vöxt­ur­inn á tekjum vegna Tempo var um 50 pró­sent á ári fyrstu árin. Snemma árs 2015 var Tempo búið að vaxa svo mikið að ákveðið var að aðskilja rekst­ur­inn frá TM Software og setja hann inn í sér­stakt fyr­ir­tæki. Ári síð­ar, 2016, var greint frá því að ráð­gjafar hefðu verið ráðnir til að und­ir­búa sölu­ferli. Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um veg­ferð Tempo á þessum árum.

Í til­kynn­ing­unni sem send var til Kaup­hallar í gær er haft eftir Hjalta Þór­ar­ins­syni, stjórn­ar­for­manni Origo að nú væri komið að ánægju­legum tíma­mótum eftir langa sam­fylgd. „Stórt skref var tekið í nóv­em­ber 2018 þegar Origo seldi meiri­hluta í félag­inu til Diversis Capi­tal í þeim til­gangi að fá með­fjár­festa með alþjóð­lega reynslu til að hraða vexti félags­ins og auka virði fyrir hlut­hafa Origo. Sú veg­ferð sem Origo lagði upp með þá hefur að fullu gengið eftir og rúm­lega það, og hefur virði Tempo átt­fald­ast frá því haustið 2018. Arð­semi Origo af þessum við­skiptum er frá­bær og hlut­hafar Origo inn­leysa hér mikil verð­mæt­i.” 

Jón Björns­son, for­stjóri Origo, segir á sama stað að sala á meiri­hluta í félag­inu til Diversis Capi­tal árið 2018 hafi reynst mjög góð ákvörðun hjá stjórn­endum Origo. „Ár­angur Diversis með Tempo hefur farið fram úr vænt­ing­um. Tempo stendur nú á ákveðnum kross­götum í sinni veg­ferð eftir kaup á tveimur nýjum félögum sem meira en tvö­faldar stærð félags­ins.  

Veg­ferð Tempo sýnir skýrt hvað frá­bært starfs­fólk, íslenskt hug­vit, stuðn­ingur eig­enda og stjórn­valda getur búið til mikil verð­mæti í hug­bún­að­ar­geir­an­um. Origo heldur áfram að þróa lausnir sem breyta leiknum líkt og Tempo hefur gert og vonum við að fleiri hug­bún­að­ar­vörur geti átt jafn far­sælan feril og Tempo.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent