Yfir 20 þúsund einstaklingar nýttu sér skattafrádrátt vegna almannaheillaskrár

403 félög eru á almannaheillaskrá Skattsins í ár, 186 fleiri en í fyrra. Yfir 20 þúsund einstaklingar nýttu sér skattafrádrátt vegna greiðslna til félaga á almannaheillaskrá á síðasta ári og nema þær á bilinu 130 til 192 milljónum króna.

Lög sem heim­ila skatt­frá­drátt allt að 350 þús­und krónum á ári vegna gjafa og fram­laga til félaga sem skráð eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins tóku gildi í nóvember í fyrra. Síðan þá hafa 403 félög verið samþykkt.
Lög sem heim­ila skatt­frá­drátt allt að 350 þús­und krónum á ári vegna gjafa og fram­laga til félaga sem skráð eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins tóku gildi í nóvember í fyrra. Síðan þá hafa 403 félög verið samþykkt.
Auglýsing

Rúm­lega 20 þús­und manns nýttu sér skatta­frá­drátt vegna greiðslna til félaga á almanna­heilla­skrá á síð­asta ári. Sam­tals er um að ræða 416 millj­ónir frá tekju­skatts- og útsvars­stofni og getur end­ur­greiðslan numið á bil­inu 130 til 192 millj­ónum króna, allt eftir því í hvaða skatt­þrepi frá­drátt­ur­inn lend­ir.

Lög um félög til almanna­heilla sem heim­ila skatt­frá­drátt allt að 350 þús­und krónum á ári vegna gjafa og fram­laga til félaga sem skráð eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins tóku gildi 1. nóv­em­ber á síð­asta ári. End­ur­greiðslan nær því aðeins yfir síð­ustu tvo mán­uði síð­asta árs.

Auglýsing
Lög­að­ilum sem upp­­­fylla til­­­tekin skil­yrði er heim­ilt að sækja um skrán­ingu á almanna­heilla­­skrá Skatts­ins. Almennt er um að ræða óhagn­að­­ar­drifin félög sem í meg­in­­dráttum reka ekki atvinn­u­­starf­­semi í skiln­ingi skatta­laga, heldur fyrst og fremst starf­­semi með þjóð­­fé­lags­­legan til­­­gang og sam­­fé­lags­­leg mark­mið að leið­­ar­­ljósi. Meðal félaga sem hlotið hafa sam­­þykki á almanna­heilla­­skrá eru trú­­fé­lög, söfn­uð­ir, íþrótta­­fé­lög, björg­un­­ar­sveitir og ýmis hjálp­­­ar­­sam­tök og styrkt­­ar­­fé­lög.

217 félög voru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins í fyrra. Þremur umsóknum var hafn­að. 403 félög eru á almanna­heilla­skrá Skatts­ins í ár en þar er einnig að finna félög sem sam­þykkt voru í lok síð­asta árs sem gilda út árið 2022, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skatt­in­um. 16 umsóknir bíða sam­þykktar sem stend­ur.

101 umsókn hafnað á þessu ári

Það sem af er þessu ári hefur 101 umsókn verið hafn­að, þar af eru 45 umsóknir sem bár­ust í nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra. Í svari Skatts­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans kemur fram að ein­hverjum þess­ara félaga hafi verið hafnað þar sem svar við fyr­ir­spurn rík­is­skatt­stjóra barst ekki. Ef svar hefur borist eftir höfnun hafa félögin sótt um aftur og þá verið sam­þykkt.

Heild­ar­end­ur­greiðsla á síð­asta ári vegna félaga á almanna­heilla­skrá Skatts­ins er ekki ljós þar sem álagn­ing lög­að­ila vegna rekstr­ar­árs­ins 2021 liggur ekki fyrir fyrr en í lok þessa mán­að­ar. Ef litið er til álagn­ingar ein­stak­linga vegna árs­ins 2021 nýttu 20.473 ein­stak­lingar sé frá­drátt­inn og drógu, eins og fyrr seg­ir, 416 millj­ónir frá tekju­skatts- og útsvars­stofni sín­um. End­ur­greiðslan getur numið á bil­inu 130 til 192 millj­ónum króna, eftir því í hvaða skatt­þrepi frá­drátt­ur­inn lend­ir.

Áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs vegna almanna­heilla­skrár um 800 millj­ónir króna á ári

Skatt­ur­inn hefur ekki áætlað hversu há upp­hæðin verður í ár en í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans er vísað í frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.

Þar segir að áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs af hækkun heim­ildar lög­að­ila til að draga frá tekjum af atvinnu­rekstri ein­staka gjafir og fram­lög til til­tek­inna aðila sé um 800 millj­ónir króna á ári og áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs af nýrri heim­ild fyrir ein­stak­linga til að draga frá skatt­skyldum tekjum sínum sam­bæri­legar gjafir og fram­lög, miðað við hámarks­fjár­hæð 350 þús­und krón­um, sé 500 millj­ónir króna á ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent