Ekkert í lögum girði fyrir flutning embættismanna á milli greina ríkisvaldsins

Skrifstofa Alþingis segir ekkert í lögum girða fyrir flutning ríkisendurskoðanda í stöðu ráðuneytisstjóra. Ekki er tekin þó afstaða til þess hvort heppilegt sé að flytja embættismann sem kjörinn er af þinginu í embætti sem heyri undir ráðherra.

Skrifstofa Alþingis birti í gær minnisblað um álitaefni vegna skipunar Skúla Eggerts Þórðarsonar fv. ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra.
Skrifstofa Alþingis birti í gær minnisblað um álitaefni vegna skipunar Skúla Eggerts Þórðarsonar fv. ríkisendurskoðanda í embætti ráðuneytisstjóra.
Auglýsing

Lög um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, hin svoköll­uðu starfs­manna­lög, taka til rík­is­end­ur­skoð­anda og eru ein­stök ákvæði lag­anna, þar á meðal þau sem fjalla um flutn­ing emb­ætt­is­manna, þar ekki und­an­skil­in. Í lögum eru engin ákvæði sem girða fyrir að emb­ætt­is­maður geti flust í annað emb­ætti sem heyrir undir annan geira rík­is­valds­ins.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem skrif­stofa Alþingis tók saman í til­efni af fram­komnum athuga­semdum bæði umboðs­manns Alþingis og þing­manna við flutn­ing Skúla Egg­ert Þórð­ar­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í nýju menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyti Lilju Alfreðs­dótt­ur.

Afstaða ekki tekin til þess hvort flutn­ing­ur­inn sé heppi­legur

Í minn­is­blað­inu, sem birt var á vef Alþingis í gær ásamt öðrum gögnum sem varða flutn­ing Skúla Egg­erts í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra, er þó ekki tekin nein afstaða til þess „hvort almennt sé heppi­legt að emb­ætt­is­maður sem kjör­inn er af Alþingi til þess að gegna trún­að­ar­störfum á þess vegum sé fluttur í emb­ætti er heyrir undir ráð­herra að skipa í“.

Jóhann Páll Jóhann­s­son þing­­maður Sam­­fylk­ingar gagn­rýndi skipan Skúla Egg­erts í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra á þessum sama grund­velli á þriðju­dag­inn og full­yrti að verið væri að mis­­beita 36. grein laga um rétt­indi og skyldur starfs­­manna rík­­is­ins með skipan rík­­is­end­­ur­­skoð­anda í ráðu­neyt­is­stjóra­emb­ættið og setja „hættu­legt for­dæmi“.

Skúli Egg­ert sam­þykkur flutn­ingi

Rík­is­end­ur­skoð­and­inn fyrr­ver­andi sendi for­seta Alþing­is, Birgi Ármanns­syni, bréf þann 25. jan­úar þar sem hann sagði frá því að Lilja hefði leitað til hans um að taka við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra og óskaði eftir því að for­seti Alþingis sam­þykkti flutn­ing­inn, sem svo var gert þann 27. jan­ú­ar.

Auglýsing

Í bréf­inu sagði Skúli Egg­ert að af lögum um rík­is­end­ur­skoð­anda og end­ur­skoðun rík­is­reikn­inga mætti ráða að starfs­manna­lögin giltu um starfs­fólk Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, þar með talið um flutn­ing á milli starfa. Reynt hefði á það tvisvar á árinu 2018, er tveir starfs­menn rík­is­skatt­stjóra voru fluttir til Rík­is­end­ur­skoð­unar á grund­velli flutn­ings­á­kvæð­is, þó ekki því sama og fjallar um flutn­ing emb­ætt­is­manna.

Skúli Eggert Þórðarson ráðuneytisstjóri og fyrrverandi ríkisendurskoðandi.

Í til­kynn­ingu frá Alþingi segir að líta beri „á sam­þykki Skúla Egg­erts um flutn­ing í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í Stjórn­ar­ráði Íslands sem ósk um starfs­lok með sam­bæri­legum hætti og þegar emb­ætt­is­maður biðst lausnar frá emb­ætti sín­u.“

Skúli Magn­ús­son, umboðs­maður Alþing­is, óskaði á þriðju­dag eftir því að fá frek­ari skýr­ingar frá bæði Lilju og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur á skipan og setn­ingu þeirra á nýjum ráðu­neyt­is­stjórum, en í hinu nýja ráðu­neyti háskóla-, iðn­aðar og nýsköp­unar var Ásdís Halla Braga­dóttir sett tíma­bundið í stöð­una.

Í til­­­felli beggja ráð­herra óskaði umboðs­­maður eftir því að fá svör við bréfum sínum eigi síðar en þann 11. febr­­ú­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent