Umboðsmaður krefur tvo ráðherra svara um ráðuneytisstjóraráðningar

Umboðsmaður Alþingis sendi í dag bréf á ráðherrana Lilju Alfreðsdóttur og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og óskaði eftir skýringum á skipan og setningu þeirra á æðstu embættismönnum nýrra ráðuneyta.

Skúli Magnússon er Umboðsmaður Alþingis.
Skúli Magnússon er Umboðsmaður Alþingis.
Auglýsing

Umboðs­maður Alþing­is, Skúli Magn­ús­son, sendi fyrr í dag bréf á bæði Lilju Alfreðs­dóttur ferða­mála-, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, þar sem óskað er eftir því að ráð­herr­arnir skýri laga­legan grund­völl fyrir skipan eða tíma­bund­inni setn­ingu nýrra ráðu­neyt­is­stjóra í þeirra ráðu­neyt­u­m.

Lilja Dögg tók ákvörðun um það í síð­ustu viku að skipa Skúla Egg­ert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­anda sem ráðu­neyt­is­stjóra í sínu nýja ráðu­neyti, en Áslaug Arna setti Ásdísi Höllu Braga­dóttur í gær tíma­bundið í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í sínu nýja ráðu­neyti.

Af bréfum Umboðs­manns Alþingis til ráð­herr­anna tveggja má merkja að hann átti sig ekki fylli­lega á því hvaða laga­legi grund­völlur hafi verið fyrir þess­ari skipun og setn­ingu í emb­ætti – að minnsta kosti óskar hann skýr­inga.

Í til­felli Skúla Egg­erts fylgdi til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu um skipan hans lítil klausa um að hann hefði verið skip­aður án aug­lýs­ingar í emb­ættið á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­­manna rík­­is­ins, þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­­manna rík­­is­ins milli starfa í 36. grein lag­anna.

Auglýsing

Umboðs­maður Alþingis bendir hins vegar á það í bréfi sínu til Lilju að rík­is­end­ur­skoð­andi sé emb­ætt­is­maður sem heyri laga­lega undir Alþingi og sé sjálf­stæður og engum háður í störfum sín­um.

Jóhann Páll Jóhann­son þing­maður Sam­fylk­ingar gagn­rýndi skipan Skúla Egg­erts í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra á þessum sama grund­velli á þingi í dag og full­yrti að verið væri að mis­beita 36. grein laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins með skipan rík­is­end­ur­skoð­anda í þetta emb­ætti.

Lilja Alfreðsdóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Umboðs­maður óskar eftir skýr­ingum á því frá Lilju á hvaða laga­grund­velli ákvörðun um skip­un­ina, án aug­lýs­ing­ar, hafi verið reist.

Ef skýr­ingin sé sú að það hafi verið gert á grund­velli ákvæðis starfs­manna­laga um flutn­ing emb­ætt­is­manna milli emb­ætta óskar Umboðs­maður eftir því að ráð­herra geri grein fyrir því hvaða for­sendur og laga­sjón­ar­mið bjuggu þar að baki.

Vill fá að vita af hverju staðan var ekki aug­lýst

Síð­degis í gær var til­kynnt af hálfu nýs ráðu­neytis háskóla-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis að Ásdís Halla hefði verið sett í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra tíma­bundið til þriggja mán­aða, á meðan aug­lýst yrði eftir ráðu­neyt­is­stjóra.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Í bréfi Umboðs­manns Alþingis til Áslaugar Örnu segir að ekki verði annað ráð­ið, í ljósi þess að verið sé að setja á fót nýtt ráðu­neyti, að um nýtt emb­ætti innan ráðu­neyt­is­ins sé að ræða.

Umboðs­maður óskar því eftir upp­lýs­ingum „um hvort umrætt emb­ætti hafi verið aug­lýst til umsókn­ar“ og ef svo hafi ekki ver­ið, óskar hann eftir skýr­ingum frá ráð­herra á því á hvaða laga­grund­velli það hafi verið gert.

Í til­felli beggja ráð­herra óskar Umboðs­maður Alþingis eftir því að fá svör eigi síðar en þann 11. febr­úar næst­kom­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent