Ellefu börn greindust með COVID-19 í gær

Af þeim sautján sem greindust með smit innanlands í gær eru ellefu börn á aldrinum 6-12 ára. Smit kom upp í Laugarnesskóla og eru nú allir nemendur skólans í svokallaðri úrvinnslusóttkví sem og allir nemendur Laugalækjarskóla.

Ekki hafa fleiri greinst innanlands með veiruna á einum degi síðan í byrjun desember.
Ekki hafa fleiri greinst innanlands með veiruna á einum degi síðan í byrjun desember.
Auglýsing

Sautján inn­an­lands­smit greindust í land­inu í gær. Fjórtán þeirra sem greindust voru í sótt­kví. Fjórtán manns greindust í svoköll­uðum ein­kenna­sýn­um, þ.e. hjá fólki sem fór í sýna­töku vegna ein­kenna, en fjórtán í handa­hófs- og sótt­kví­ar­skimun­um. 454 eru í sótt­kví á land­inu og 75 í ein­angrun – með virkt smit af kór­ónu­veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á covid.­is.

Fimm þeirra sem greindust með sjúk­dóm­inn í gær eru á aldr­inum 30-39 ára og eru nú 26 í þeim ald­urs­hópi með virkt smit. Þá greindust ell­efu börn á aldr­inum 6-12 ára og eru nú 12 í þeim ald­urs­hópi í ein­angrun með virkt smit.

Í gær voru tekin 1.557 sýni inn­an­lands, lang­flest þeirra voru vegna ein­kenna sem fólk hafði.

Auglýsing

Þrír greindust með virkt smit á landa­mær­unum í gær.

Aðeins 19.887 ein­stak­lingar á Íslandi eru full­bólu­sett­ir. Tæp­lega 18.255 til við­bótar hafa fengið fyrri skammt bólu­efn­is. Í upp­færðu bólu­setn­ing­ar­daga­tali stjórn­valda er gengið út frá því að þjóðin verði full­bólu­sett í lok júlí í stað júníloka. Um 79 pró­sent 90 ára og eldri eru full­bólu­settir nú þegar og um 74 pró­sent fólks á aldr­inum 80-89 ára. Aðeins 8 pró­sent fólks aldr­inum 70-79 er hins vegar full­bólu­sett.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent