Ellefu mál er varða kynferðislega áreitni eða ofbeldi komið upp hjá Landsvirkjun á fjórum árum

Málin sem um ræðir eru af ýmsu tagi og snúa bæði að starfsfólki, verktökum og samskiptum starfsfólks við ytri aðila. Þremur málum af ellefu lauk með starfslokum.

Landsvirkjun Mynd: Landsvirkjun
Auglýsing

Alls hafa 11 til­vik er varða ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni, áreiti eða ofbeldi borist á borð stjórn­enda Lands­virkj­unar á síð­ustu fjórum árum.

Þetta kemur fram í svari Lands­virkj­unar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Fram kemur hjá fyr­ir­tæk­inu að Lands­virkjun sé með skil­greinda við­bragðs­á­ætlun fyrir grein­ingu og úrvinnslu mála af þessu tagi í sam­ræmi við reglu­gerð um aðgerðir gegn kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni eða ofbeldi. Við­bragðs­á­ætl­unin sé hluti af stjórn­un­ar­kerfi fyr­ir­tæk­is­ins og end­ur­skoðuð með reglu­bundnum hætti. Í starfs­manna­könn­unum komi enn fremur fram að starfs­fólk þekki vel til við­bragðs­á­ætl­un­ar­inn­ar.

Auglýsing

Þremur málum lauk með starfs­lokum

„Á síð­ustu fjórum árum hefur komið til þess að stuðst hefur verið við fram­an­greint verk­lag við úrlausn mála. Lands­virkjun er enn fremur í sam­starfi við ytri sér­fræð­inga um mála­flokk­inn við úrvinnslu mála sem falla undir við­bragðs­á­ætl­un­ina. Stöðugt er unnið að fræðslu og for­vörnum innan fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi þennan mála­flokk, m.a. með vinnu á áhættu­mati, reglu­legri fræðslu um mála­flokk­inn og öruggri óháðri veit­u/­leið fyrir starfs­fólk að leita til ef upp koma mál,“ segir í svar­inu.

Enn fremur kemur fram að á síð­ast­liðnum fjórum árum hafi verið stuðst við við­bragðs­á­ætl­un­ina í 11 til­vik­um. „Málin sem um ræðir eru af ýmsu tagi og snúa bæði að starfs­fólki, verk­tökum og sam­skiptum starfs­fólks við ytri aðila. Tveimur málum lauk með sátt, tveimur með munn­legri áminn­ingu, tveimur með skrif­legri áminn­ingu, þremur málum lauk með starfs­lokum og tvö mál sem sneru að ytri aðilum voru leyst með öðrum hætt­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent