Félag Eyþórs keypti kröfu á annað félag Eyþórs vegna Moggakaupa af dótturfélagi Samherja

Fyrr á þessu ári keypti félag í eigu Eyþórs Arnalds kröfu sem dótturfélag Samherja átti á annað félag í eigu Eyþórs vegna viðskipta með hlut í Morgunblaðinu. Ekki er ljóst hvort félag Eyþórs greiddi eitthvað fyrir kröfuna.

Eyþór Arnalds er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og sömuleiðis af óljósum ástæðum einn stærsti eigandi útgáfufélags Morgunblaðsins.
Eyþór Arnalds er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og sömuleiðis af óljósum ástæðum einn stærsti eigandi útgáfufélags Morgunblaðsins.
Auglýsing

Fyrr á þessu ári náð­ist sam­komu­lag á milli félags­ins Ram­ses II, sem er í fullri eigu borg­ar­full­trú­ans Eyþórs Arn­alds, og félags­ins Katt­ar­nefs, sem er dótt­ur­fé­lag Sam­herja, um að annað félag í eigu Eyþórs, sem heitir Ram­ses, keypti kröfu sem Katt­ar­nef átti á Ram­ses II.

Um er að ræða kröfu vegna skulda­bréfa­láns sem Katt­ar­nef veitti Ram­ses II til kaupa á eign­ar­hlut í Þórs­mörk, móð­ur­fé­lagi útgáfu­fé­lags­ins Árvak­urs, sem gefur út Morg­un­blað­ið, mbl.is og fleiri miðla.

Þetta má lesa í árs­reikn­ingi Ram­ses II fyrir árið 2020, sem orð­inn er aðgengi­legur á vef Skatts­ins. Ekki kemur fram hversu mikið Ram­ses greiddi Katt­ar­nefi fyrir kröf­una, ef eitt­hvað.

Vert er að taka fram að Katt­ar­nef var búið að afskrifa kröf­una sem félagið átti á félag Eyþórs. Það var gert árið 2019 og þýðir að Katt­ar­nef hefur ekki gert sér vonir um að nokkuð myndi inn­heimt­ast af lán­inu sem félag Eyþórs fékk á sínum tíma til að kaupa hlut í Þórs­mörk.

„Skulda­bréfa­lán félags­ins féllu á gjaldaga á árinu. Á árinu 2021 náð­ist sam­komu­lag við kröfu­hafa um að móð­ur­fé­lag félags­ins keypti kröf­una af lán­veit­end­um,“ segir í árs­reikn­ingi Ram­ses II. Þar segir einnig að gjald­fallnar afborg­anir félags­ins hafi numið alls 386,8 millj­ónum króna.

Eyþór hefur ekki brugð­ist við spurn­ingu Kjarn­ans, sem lögð var fram í gær, um hvort félag hans hafi greitt dótt­ur­fé­lagi Sam­herja eitt­hvað fyrir kröf­una, en eins og áður hefur komið fram var um að ræða svo­kallað selj­enda­lán, sem Sam­herji veitti félagi Eyþórs til kaupa á hlut Sam­herja í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Ein­ungis einn gjald­dagi var á lán­inu, í mars í fyrra.

Auglýsing

Eyþór sagði við Kjarn­ann í októ­ber í fyrra að honum þætti ólík­legt að eign­ar­hlut­ur­inn í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins færð­ist aftur til Sam­herja í ljósi þess að lánið væri gjald­fall­ið, en það hafði þá komið fram í árs­reikn­ingi Ram­ses II fyrir árið 2019.

Hann sagði hlut sinn í útgáfu­fé­lag­inu til sölu sem fyrr og að selj­enda­lán eins og það sem hann hefði fengið frá Sam­herja væru algeng aðferð þegar um áhættu­fjár­fest­ingu væri að ræða og óvissa ríkti um verð­mæti þess hlutar sem keyptur er.

Eyþór var ekki byrj­aður í borg­arpóli­tík­inni þegar hann varð hlut­hafi í útgáfu Morg­un­blaðs­ins og vék úr stjórn Árvak­urs eftir að hann fór í fram­boð sem odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Á stjórn­mála­svið­inu í borg­inni hafa þó ítrekað verið settar fram áleitnar spurn­ingar um það af hverju hann hafi eign­ast svo stóran hlut í einu stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins.

Greint var frá því að Eyþór hefði stigið inn sem kjöl­­fest­u­fjár­­­festir í Árvakri í byrjun apríl árið 2017, en þá keypti hann 18,43 pró­­sent hlut sem Sam­herji átti í gegn­um fé­lagið Katt­­­ar­­­nef ehf. og til við­­bótar keypti hann 6,14 pró­­sent hlut Síld­­­ar­vinnsl­unn­ar hf. og 2,05 pró­­sent hlut Vís­is hf. í útgáfu­­fé­lag­inu, alls 26,62 pró­­sent á þeim tíma.

Sá hlutur hefur síðan rýrnað vegna ítrek­aðra hluta­fjárinn­spýt­inga ann­arra hlut­hafa Þórs­merkur og er Eyþór Arn­alds í dag eig­andi 13,41 pró­sents hlutar í útgáfu­fé­lag­inu. Sá eign­ar­hlutur var met­inn á 82,4 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og hefur lækkað um meira en 100 millj­ónir króna í virði frá árs­lokum 2017.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent