Félag í eigu Samherja gert að greiða starfsmönnum Heinaste sáttargreiðslu

Félagið ArcticNam, sem Samherji á 49 prósenta eignarhlut í, hefur verið gert að greiða 23 starfsmönnum togarans Heinaste sáttargreiðslu í þessum mánuði vegna uppsagnar án starfslokagreiðslna.

Togarinn Heinaste, sem var kyrrsettur í lok árs 2019.
Togarinn Heinaste, sem var kyrrsettur í lok árs 2019.
Auglýsing

Félags­dómur í Namibíu hefur úrskurðað að Arct­icNam, sem er félag í helm­ing­seigu Sam­herja, skuli greiða 23 starfs­mönnum tog­ar­ans Heinaste 15,7 millj­ónir króna í sátt­ar­greiðslu. Stjórn­ar­for­maður félags­ins seg­ist vilja greiða upp­hæð­ina, en bíður eftir sam­þykki frá Sam­herja. Þetta kemur fram í frétt frá namibíska frétta­miðl­inum New Era.

Sam­kvæmt frétt­inni er greiðslan reiknuð sem árs­laun þess­ara 23 manna, sem fengu engan upp­sagn­ar­frest eða starfs­loka­greiðslur þegar þeir misstu vinn­una sína árið 2018 og leigu­starfs­menn voru ráðnir til starfa í stað­inn. Tíu mán­uðum seinna var tog­ar­inn svo kyrr­sett­ur.

Kjarn­inn hefur áður fjallað um kyrr­setn­ing­una, en hún virt­ist fyrst vera vegna ólög­mætra veiða á hrygn­ing­ar­svæði við strendur Namibíu sem átti að vera lokað fyrir veið­um. Í febr­úar í fyrra var tog­ar­inn hins vegar kyrr­settur aftur á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi.

Auglýsing

Sam­kvæmt úrskurði félags­dóms í namibísku hafn­ar­borg­inni Wal­vis Bay sem birtur var þann 24. júní, ætti Arct­icNam, eig­andi Heina­ste, að borga starfs­mönn­unum sam­tals 1,8 milljón namibískra dala fyrir lok þessa mán­að­ar. Það jafn­gildir um 15,7 millj­ónum íslenskra króna.

Segir Sam­herja hafa rúið félagið að skinni

Stjórn­ar­for­maður Arct­icNam, Virgilio De Sousa, sagð­ist styðja starfs­menn tog­ar­ans að fullu í við­tali við New Era. Hins vegar sagði hann stjórn fyr­ir­tæk­is­ins vera að reyna að draga Sam­herja til ábyrgðar um fjár­mál félags­ins, sem sé óvirkt þessa stund­ina, Sam­kvæmt honum reyndu Sam­herj­a­menn að leysa upp félagið árið 2019, en aðrir hlut­hafar voru á móti því.

De Sousa bætti einnig Sam­herja hafa rúið fyr­ir­tækið inn að skinni og að það ætti engar eignir þessa stund­ina sem hægt væri að selja. „En við munum hitt­ast á hlut­hafa­fundi í vik­unni til að sjá hvort við getum leyst mál­ið, þar sem stjórnin er ekki ábyrg gagn­vart þessum greiðsl­u­m,” sagði hann.

Munu leita til hæsta­réttar ef félagið greiðir ekki

Tals­maður starfs­mann­anna á Heina­ste, Philip Muneng­uni, sagði hins vegar að þeir myndu leita réttar síns hjá hæsta­rétti Namibíu ef úrskurði félags­dóms­ins yrði ekki mætt í lok mán­að­ar­ins: „Starfs­menn­irnir hafa þjáðst nógu lengi og ég mun sjá til þess að þeir fái allt það sem þeir eiga skilið sam­kvæmt úrskurð­in­um“.

Breytt kl: 13:14. Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar kom fram að upp­sögn starfs­mann­anna væri í kjöl­far kyrr­setn­ingar tog­ar­ans árið 2019. Hið rétta er að starfs­mönnum Heinaste var sagt upp árið 2018 og leigu­starfs­menn voru ráðnir í stað­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent