Í gær greindust fimm COVID-19 smit innanlands, allir utan sóttkvíar. Þrír hinna smituðu eru full bólusettir en tveir ekki bólusettir að fullu. Smitrakning stendur yfir og er líklegt að á annað hundrað manns munu fara í sóttkví vegna þessa.
„Það er ljóst að það er samfélagslegt smit á landinu og því er gríðarlega mikilvægt að allir fari varlega á næstu dögum og vikum, líka þeir sem eru bólusettir því augljóst er að þeir aðilar geta áfram smitast af COVID-19,” segir í tilkynningu frá Hjördísi Guðmundsdóttur, upplýsingafultrúa almannavarna.
„Sérstaklega er mikilvægt að farið sé varlega í umgengni við viðkvæma einstaklinga sem gætu veikst alvarlega af COVID-19 jafnvel þó að þeir séu bólusettir.”
Tveir greindust innanlands og utan sóttkvíar í gær og voru þeir báðir bólusettir.
Þau smit sem hafa komið upp undanfarna daga hafa tengingar við skemmtanalífið, stóra fjölskyldu- og vinaviðburði, segir Hjördís. „Almannavarnir hvetja alla til að halda áfram að passa upp á einstaklingsbundnar sóttvarnir og fara í sýnatöku við minnstu einkenni, bæði bólusettir einstaklingar og óbólusettir.”