Fjármálastöðugleiki, rit Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleikaþætti í hagkerfinu, hefur verið birt, en birtingu þess var í upphafi frestað. Til stóð að birta viðauka með ritinu, en ekki tókst að ljúka mati á undanþágubeiðnum fyrir birtingardag, sem var áætlaður 6. október upphaflega. „Til stóð að birta viðauka við ritið þar sem greint yrði frá tillögum kröfuhafa um hvernig þeir hygðust uppfylla stöðugleikaskilyrði stjórnvalda og mati á heildaráhrifum mögulegra nauðasamninga á grundvelli þeirra. Ekki verður unnt að ljúka mati á undanþágubeiðnum einstakra búa gömlu bankanna fyrr en endanleg gögn sem haft gætu áhrif á matið liggja fyrir. Seðlabankinn mun birta sérstaklega niðurstöður mats á áhrifum undanþágubeiðnanna á greiðslujöfnuð, stöðugleika í gengis- og peningamálum og fjármálastöðugleika þegar greiningu bankans er lokið og hún hefur verið kynnt fjármálaráðherra og efnahags- og viðskiptanefnd. Sérstakur kynningarfundur fyrir fréttamenn verður haldinn af því tilefni,“ segir í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands.
Í ritinu eru meðal annars birtar niðurstöður úr álagsprófi sem framkvæmt var á efnahag endurreistu bankanna, Arion banka, Landsbanka og Íslandsbanka.
Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir í tilkynningu að það sé einkum framvindan á vinnumarkaði sem sé áhættuþáttur í hagkerfinu í augnablikinu. „Undir lok þessa árs mun efnahagsbati hafa staðið yfir í 5 ár samfleytt. Á þeim tíma hafa flestir vísar efnahagslífsins og forsendur fjármálastöðugleika færst í betra horf. Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja, heimila, fyrirtækja og þjóðarbúsins í heild hafa smám saman orðið eðlilegri og eru enn að styrkjast og einfaldast. Á síðasta ári var uppi sjaldgæf staða í íslenskri hagsögu að því leyti að segja má að ríkt hafi innri og ytri stöðugleiki í þjóðarbúskapnum samtímis; lítil verðbólga, framleiðsla nálægt getu og nokkur viðskiptaafgangur. Fjármálafyrirtæki skiluðu góðum hagnaði við þessar aðstæður, lausafjárstaða rúm og eiginfjárhlutföll hækkuðu,“ segir Arnór.
Hann segir enn fremur aðstæður hafi batnað enn frekar á þessu ári, frá því síðasta. „Hins vegar má sjá fyrstu merki þess að spenna sé aftur tekin að myndast í þjóðarbúskapnum sem gæti orðið uppspretta efnahagslegs óstöðugleika og áhættu í fjármálakerfinu þegar skyggnst er lengra fram á veginn. Er þá einkum horft til framvindunnar á vinnumarkaði, hækkunar fasteignaverðs og fyrstu merkja um aukið innstreymi erlends fjármagns. Hættan er þó ekki enn orðin mikil og nægt svigrúm er til þess að bregðast við því sem gæti verið í aðsigi. Að auki felur sterk eiginfjárstaða fjármálafyrirtækja í sér að viðnámsþróttur þeirra ætti að vera góður næst þegar gefur á bátinn. Í júnílok nam eiginfjárstaða stóru bankanna þriggja 26,6% af áhættugrunni.“