Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir koma til greina að ráðast í skattahækkanir á almenning og fyrirtæki í landinu til að spyrna gegn þenslu og verðbólgu. Þetta sagði forsætisráðherra í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Skattahækkanir séu ein af fáum aðgerðum stjórnvalda sem hægt sé að grípa til ef verulegar launahækkanir ógna stöðugleikanum.
„Ég er ekki að boða þetta, ég er bara að segja að ef við horfum fram á verulega verðbólgu þá mun auðvitað þurfa að bæta kjör öryrkja, það þarf að auka bætur til samræmis við verðlagsþróun. [...] Ef verðbólga fer af stað þá felur það í sér aukinn kostnað hjá ríkinu í mjög stórum liðum eins og í almannatryggingakerfinu, sem þýðir einfaldlega að ríkið þarf meiri tekjur,“ sagði Sigmundur Davíð í útvarpsviðtalinu. „Um leið þarf ríkið að hafa hamlandi áhrif á verðbólguna, frekar en að ýta frekar undir hana.“
Sigmundur Davíð ítrekaði að þetta væri einungis ein af þeim aðgerðum sem væri til skoðunar hjá stjórnvöldum. „Þetta er bara ein af þeim aðgerðum sem menn líta til og hafa gert í gegnum tíðina til að bregðast við þenslu. Seðlabankinn segist muna þurfa hækka vexti, hlutverk ríkisvaldsins að öðru leyti við þessar aðstæður hefur yfirleitt verið að hækka skatta og gjöld frekar en hitt til að ná jafnvægi aftur í hagkerfinu.“
Þá sagði forsætisráðherra að lokum: „Ég er ekki að boða þetta og ég vona svo sannarlega að það verði samið á þann hátt að aðkoma ríkisins geti falist í því að auka enn á ráðstöfunartekjur og auka enn á kaupmáttinn, en ein af fáum leiðum sem stjórnvöld hafa til að bregðast við þenslu í efnahagslífinu eru skattahækkanir.“