Framboðshökt væntanlegt vegna smitbylgju í Kína

Kínverska ríkisstjórnin hefur sett á sjö daga útgöngubann í hafnarborginni Shenzhen vegna nýrrar smitbylgju af kórónuveirunni. Bannið, ásamt öðrum sóttvarnaraðgerðum í landinu, gæti haft töluverð áhrif á vöruflutninga á heimsvísu.

Frá Yantian-höfninni í Shenzhen.
Frá Yantian-höfninni í Shenzhen.
Auglýsing

Kór­ónu­veirusmitum hefur fjölgað hratt í tveimur kín­verskum borgum á síð­ustu dögum og hafa stjórn­völd þar í landi brugð­ist við þeim með umfangs­miklum sótt­varn­ar­að­gerð­um. Sam­kvæmt sér­fræð­ingum gæti bannið valdið miklu hökti í alþjóð­legum vöru­flutn­ingum og fram­leiðslu á raf­tækj­um.

New York Times greindi frá því á sunnu­dag­inn að útgöngu­banni hafi verið komið á í hafn­ar­borg­inni Shenzhen vegna mik­illar fjölg­unar smita þar á síð­ustu dög­um. Nýgreind smit voru þó ein­ungis 66 tals­ins í gær, en kín­versk stjórn­völd hafa áður gripið til umfangs­mik­illa aðgerða í land­inu til þess að kæfa far­ald­ur­inn niður í fæð­ingu.

Shenzhen, sem hefur alls 17,5 millj­ónir íbúa, er mið­stöð kín­verskra tækni­fyr­ir­tækja og raf­magns­tækja­fram­leið­enda, auk þess sem hún hefur að geyma Yant­i­an-höfn­ina, sem er fjórða stærsta gáma­höfn í heimi. Um 90 pró­sent af öllum raf­tækjum frá land­inu fara um þá höfn.

Auglýsing

Útgöngu­banni var komið á fót í borg­inni í fyrra­vor, en í kjöl­farið á því urðu miklar trufl­anir í vöru­flutn­ingum á milli landa, sem leiddi til vöru­skorts og skarpra verð­hækk­ana á Vest­ur­lönd­um. Marga mán­uði tók að vinda ofan af þeim

Á meðal fyr­ir­tækja sem eru í borg­inni er Foxconn, sem er stærsti fram­leið­andi iPhone síma frá Apple. Í kjöl­far til­kynnts útgöngu­banns ákvað Foxconn að stöðva fram­leiðslu sína í tveimur af verk­smiðjum félags­ins í gær, en fyr­ir­tækið sagð­ist ætla að bíða eftir ráð­gjöf frá

Nýjum smitum hefur einnig fjölgað í Shang­hai, sem hefur að geyma stærstu gáma­höfn í heimi. Rík­is­stjórn Kína hefur þó ekki enn sett á útgöngu­bann þar, en bannar þó íbúum borg­ar­innar að ferð­ast úr henni að nauð­synja­lausu.

Í við­tali við Associ­ated Press sagði Albert Au, sem er sér­fræð­ingur hjá sótt­varn­ar­stofnun Kína, að það væri alls ekki búið að koma böndum á veiruna. „Um leið og við hættum að vera var­kár er mögu­legt að sýk­ingar muni aukast aft­ur,“ bætti hann við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent