Framkvæmdastjóri WHO bjartsýnn á að faraldrinum ljúki í ár

„Nú þegar þriðja ár faraldursins er hafið er ég sannfærður um að þetta verði árið sem við bindum endi á hann – en aðeins ef við gerum það saman,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO í nýársávarpi sínu.

Fjölskylda bíður í röð í verslunarmiðstöð í Panama eftir að komast í bólusetningu gegn COVID-19.
Fjölskylda bíður í röð í verslunarmiðstöð í Panama eftir að komast í bólusetningu gegn COVID-19.
Auglýsing

Tvö ár eru liðin frá því að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) var fyrst gert við­vart um til­felli lungna­bólgu af óþekktum orsökum í Kína. Fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar seg­ist í nýársávarpi sínu bjart­sýnn á að nú hylli undir lok far­ald­urs COVID-19 en aðeins að því gefnu að þjóðir heims vinni sam­an. Hann varar við „þröngri þjóð­ern­is­stefnu“ og því að lönd ham­stri bólu­efni. „Nú þegar þriðja ár far­ald­urs­ins er hafið er ég sann­færður um að þetta verði árið sem við bindum endi á hann – en aðeins ef við gerum það sam­an,“ sagði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO í ávarpi sínu.

Auglýsing

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa um 290 millj­ónir manna greinst með veiruna. 5,5 millj­ónir hafa lát­ist vegna COVID-19. Tveimur árum eftir að far­ald­ur­inn hófst eru áhrif hans á líf fólks og sam­fé­lög enn mik­ill: Harðar tak­mark­anir eru á landa­mærum margra ríkja, fjöl­skyldur geta ekki verið saman og víða er grímu­skylda, fjölda­tak­mark­anir og nálægða­regla í gildi.

Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri WHO. Mynd: EPA

Þrátt fyrir allt þetta var bjart­sýn­is­tónn í ávarpi fram­kvæmda­stjóra WHO, og benti hann á að eftir alla þessa mán­uði væri búið að finna mörg verk­færi til að takast á við far­ald­ur­inn. Var­úð­ar­orð hans voru þó alvar­leg. Hann ítrekar, enn og aft­ur, mik­il­vægi þess að bólu­setja sem flesta í heim­inum svo koma megi í veg fyrir að ný afbrigði veirunnar skjóti upp koll­inum í óbólu­settum sam­fé­lög­um. Verði slíkar aðstæður áfram uppi er ómögu­legt að spá fyrir um þró­un­ina á næst­unni. „Ef við bindum enda á ójafn­rétti þá bindum við enda á far­ald­ur­inn,“ sagði hann og vís­aði þar til þess að rík­ustu þjóðir heims hafa hrein­lega hamstrað bólu­efni á sama tíma og fátæk­ari ríki hafa ekki nóg til að bólu­setja sína við­kvæm­ustu hópa og fram­línu­starfs­fólk.

Að sögn sér­fræð­inga víða um heim er ýmis­legt sem bendir til að ómíkrón-af­brigði kór­ónu­veirunn­ar, sem rétt rúmur mán­uður er síðan upp­götv­að­ist en hefur breiðst til allra heims­horna, valdi væg­ari ein­kennum en þau fyrri. Í Suð­ur­-Afr­íku, þar sem það upp­götv­að­ist í lok nóv­em­ber, hefur útgöngu­banni verið aflétt enda talið að smit­bylgjan sem þar gengur yfir hafi náð hámarki sínu. Þýski veiru­fræð­ing­ur­inn Christ­ian Drosten sagði í gær ísam­tali við þýska sjón­varpið að ætti von á „frekar hefð­bundn­um“ vetri þar sem gögn bentu til að til­felli ómíkrón væri ekki alvar­leg.

Gríð­ar­legur fjöldi til­fella en færri inn­lagnir

Aldrei hafa fleiri til­felli verið að grein­ast í mörgum lönd­um, m.a. Bret­landi, á Ítalíu og Grikk­landi, og þessa dag­ana. Sjúkra­húsinn­lagnir eru þó hlut­falls­lega mun færri en í t.d. bylgj­unum sem delta-af­brigðið skæða olli. Í Suð­ur­-Afr­íku sem og í Banda­ríkj­unum eru það fyrst og fremst óbólu­settir sem eru lagðir inn vegna sýk­ingar af völdum ómíkrón.

8,5 millj­örðum skammta af bólu­efni gegn COVID-19 hefur verið dreift og sagði Tedros í ávarpi sínu að bólu­efnin hafi bjargað millj­ónum manns­lífa. WHO setti það mark­mið að í það minnsta 40 pró­sent íbúa allra landa yrðu bólu­sett við lok árs­ins 2021. Það stóðst engan veg­inn og í mörgum fátæk­ustu ríkjum heims telur hlut­fallið aðeins örfá pró­sent. Á sama tíma hafa mörg ríki, flest vest­ræn, náð um og yfir 80 pró­sent bólu­setn­ing­ar­hlut­falli og hafa hafið örv­un­ar­bólu­setn­ingar sem þykja gefa góða raun gegn alvar­legum veik­indum vegna COVID-19.

Fram­kvæmda­stjóri WHO segir að svo stöðva megi far­ald­ur­inn í ár þurfi að ná því mark­miði að bólu­setja 70 pró­sent íbúa allra ríkja fyrir lok júlí.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent