Framsalsmál rædd af sendiherra Íslands við ráðherra í Namibíu í febrúar 2020

Samkvæmt namibíska dómsmálaráðuneytinu var möguleikinn, eða öllu heldur ómöguleikinn, á framsali Íslendinga til Namibíu til umræðu á fundi sendiherra Íslands í Úganda og namibísks ráðherra, sem fram fór í febrúar árið 2020.

Unnur Orradóttir Remette fyrrverandi sendiherra í Úganda og Netumbo Nandi-Ndaitwah ráðherra alþjóðasamstarfs í Namibíu.
Unnur Orradóttir Remette fyrrverandi sendiherra í Úganda og Netumbo Nandi-Ndaitwah ráðherra alþjóðasamstarfs í Namibíu.
Auglýsing

Í febr­úar árið 2020 fund­aði Unnur Orra­dóttir Ramette, þáver­andi sendi­herra Íslands í Kampala í Úganda, með Net­umbo Nand­i-Ndaitwah, ráð­herra alþjóða­sam­skipta og -sam­starfs í namibísku rík­is­stjórn­inni. Til umræðu á fundi þeirra var meðal ann­ars mögu­leik­inn á því að íslenskir rík­is­borg­arar fengjust fram­seldir til Namib­íu, sam­kvæmt því sem fram kemur í frétt namibíska blaðs­ins Namibi­an.

Í frétt blaðs­ins á mið­viku­dag var vitnað til bréfa sem gengið hafa á milli namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unnar ACC og dóms­mála­ráðu­neytis Namibíu und­an­farnar vik­ur.

Spill­ing­ar­lög­reglan er sam­kvæmt frétt­inni orðin lang­eyg eftir því að dóms­mála­ráðu­neyt­ið, sem fer með form­leg sam­skipti er varða rétt­ar­beiðnir við önnur ríki, óski form­lega eftir fram­sali þriggja núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna Sam­herj­a­sam­stæð­unnar við íslensk yfir­völd.

Auglýsing

Sam­kvæmt frétt blaðs­ins bað spill­ing­ar­lög­reglan dóms­mála­ráðu­neytið um að koma þess­ari beiðni af stað í febr­úar á þessu ári, en síðan þá hefur ekk­ert gerst.

Í bréfi frá ráðu­neyt­is­stjóra í dóms­mála­ráðu­neyt­inu, sem Namibian vísar til, segir frá því að sendi­herra Íslands hafi fundað með namibíska ráð­herr­anum og á þeim fundi hafi íslenski sendi­herr­ann gert namibíska ráð­herr­anum ljóst að það væri bannað að fram­selja íslenska rík­is­borg­ara. Enn­frem­ur, að öllum beiðnum frá Namibíu um fram­sal fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra félaga á vegum Sam­herja í land­inu yrði hafn­að.

Fundað í Wind­hoek

Kjarn­inn hafði ekki heyrt um þennan fund fyrr og í frétt Namibian kom ekki fram hvenær hann hefði átt sér stað.

Blaða­maður beindi því fyr­ir­spurn til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um það hvar og hvenær þessi fundur sem vitnað var til í frétt Namibian hefði átt sér stað.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu. Mynd: Pexels

Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að þessi fundur sem vísað er til í frétt Namibian hafi farið fram í Wind­hoek, höf­uð­borg Namib­íu, í febr­úar árið 2020, eða ein­ungis rúmum þremur mán­uðum eftir að Sam­herj­a­málið kom upp.

Hann hafi verið á milli þáver­andi sendi­herra Íslands í Kampala, sem var Unnur Orra­dóttir Rem­ette, og ráð­herra alþjóða­sam­skipta og alþjóða­sam­starfs Namib­íu, sem heitir Net­umbo Nand­i-Ndaitwah.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent