Fyrsta dauðsfallið af völdum ebólu í sex vikur skráð í Líberíu

ebola.jpg
Auglýsing

Stjórn­völd í Líberíu til­kynntu í dag að ebólu­veiran hafi dregið mann til dauða. Eng­inn hefur lát­ist af völdum sjúk­dóms­ins í meira en sex vikur í Líber­íu. Frá þeessu greinir AFP-frétta­veitan.

„Nýtt ebólu­til­vik hefur verið skráð í Margi­by-­sýslu. Mann­eskja er látin sem hafði verið greind með veiruna áður en hún lést,“ sagði Tol­bert Nyensu­ah, ­stað­geng­ill heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins. Þegar hafa allir þeir sem kunna að hafa verið í návígi við hinn látna verið settir í ein­angrun til að hefta aðra útbreiðslu veirunn­ar.

Enn er barist við ebólu í nágrana­löndum Líber­íu, Gíneu og Síerra Leó­ne, en Margi­by-­sýsla er mun nær höf­uð­borg­inni Mon­róvíu en landa­mær­unum í norðri og vestri.

Auglýsing

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inn (WHO) lýsti Líberíu lausa við ebólu­veiruna þann 9. maí síð­ast­lið­inn eftir 42 daga far­aldur sem dró ríf­lega 4.800 manns til dauða. Það er tvö­faldur sá tími sem það tekur vírus­inn að sýkja ein­stak­ling. WHO telur þetta því vera nokkuð mik­il­vægan atburð í bar­átt­unni við sjúk­dóm­inn.

Stærsti ebólu­far­ald­ur­inn



Far­ald­ur­inn sem enn geisar í Vest­ur­-Afr­íku er löngu orð­inn skæð­asti ebólu­far­aldur sem skráður hefur ver­ið. Fyrir viku síðan gaf WHO síð­ast út opin­berar tölur og höfðu þá 11.233 lát­ist af völdum ebólu síðan í des­em­ber 2013 og 27.515 til­vik verið skráð.

Hingað til hefur tek­ist að tak­marka útbreiðslu far­ald­urs­ins við löndin þrjú, Líber­íu, Gíneu og Síerra Leó­ne. Þó hafa komið upp til­vik í nágranna­lönd­unum Níger­íu, Malí og Senegal. Líbería hefur þurft að þola hlut­falls­lega flest dauðs­föll eða 4.807. Í Síerra Leóne hafa verið skráð 3.931 dauðs­fall og í Gíneu 2.480. Erlendir heil­brigð­is­starfs­menn hafa svo smit­ast og verið sendir heim til með­höndl­un­ar. Á kort­inu hér að neðan má sjá útbreiðslu og umfang sjúk­dóms­ins eftir lönd­um.

Ebóla­vírus­inn hefur gert vart við sig reglu­lega síðan 1976 þegar 280 manns lét­ust í Saír, þar sem nú heitir Lýð­veldið Kongó, í Mið-Afr­íku. Stærstu far­aldrar hafa allir geisað í Afr­íku en minni útbreiðslur hefur verið ann­ars staðar í heim­in­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None