Hagnaður Nova 800 milljónir - Yfirburðir í sóttu gagnamagni

simar.jpg
Auglýsing

Hagn­aður Nova fjar­skipta­fyr­ir­tækis nam 814 millj­ónum króna á síð­asta ári og jókst um nærri 300 millj­ónir frá fyrra ári. Rekstr­ar­tekjur námu um 6,2 millj­örðum króna og juk­ust sömu­leiðis mikið frá árinu 2013, þegar rekstr­ar­tekjur voru 5,3 millj­arðar króna. Þetta má sjá í nýlega birtum árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Honum var skilað til Fyr­ir­tækja­skrár Rík­is­skatt­stjóra undir lok síð­asta mán­að­ar.

Nova er annað stærsta far­síma­fyr­ir­tæki lands­ins en við­skipta­vinir um síð­ustu ára­mót voru 136.876 tals­ins. Þeim fjölg­aði um 8,4 pró­sent á síð­asta ári. Félagið er að 94 pró­sent hluta í eigu Novators ehf. og Novator Tel­ecom Fin­land, eign­ar­halds­fé­laga í eigu Björg­ólfs Thors. Fram­kvæmda­stjórar Nova eru Liv Berg­þóru­dóttir og Jóakim Hlynur Reyn­is­son.

Far­síma­notkun gjör­breyst – Nið­ur­halið hjá Nova



Snjall­sím­arnir hafa á síð­ustu árum gjör­breytt far­síma­notkun og hefur nið­ur­hal gagna­magns fimm­fald­ast á Íslandi frá árinu 2012, sam­kvæmt skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar frá því í apríl síð­ast­liðnum. Milli áranna 2014 og 2013 tvö­fald­að­ist notk­un­in.

Nova er í algjörum sér­flokki meðal far­síma­fyr­ir­tækja þegar kemur að notkun gagna­magns í gegnum 4G kerf­ið. Við­skipta­vinir Nova sóttu 4.539 milljón mega­bæt á síð­asta ári, eða um 75 pró­sent alls sótts gagna­magns í far­sím­um. Segja má að Nova hafi veðjað á réttan hest þegar fyr­ir­tækið ákvað að höfða til yngstu not­end­anna á árdögum starf­sem­innar með því að gefa frí sím­töl og SMS skila­boð innan kerf­is. Sú kyn­slóð sem þá gekk til liðs við fyr­ir­tækið er síðan orðin fyrsta kyn­slóð stórnot­enda snjall­síma.

Auglýsing

Á far­síma­mark­aði er Sím­inn enn með mesta hlut­deild. Nova hefur þó sótt hratt að keppi­nauti sínum og var hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins um 32,9 pró­sent í fyrra, sam­an­borið við 35,7 pró­sent hlut­deild Sím­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None