Högnuðust um 5,2 milljarða og eru að breyta reglum um verðbréfaviðskipti starfsmanna

Arðsemi eigin fjár Íslandsbanka á fyrsta ársfjórðungi var 10,2 prósent, sem er yfir markmiðum bankans. Birna Einarsdóttir bankastjóri segir bankann taka gagnrýni á þátttöku starfsmanna í nýlegu útboði á hlutum í bankanum alvarlega.

Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.
Auglýsing

Íslands­banki hagn­að­ist um 5,2 millj­arða á fyrsta árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við 3,6 millj­arða í fyrra. Arð­semi eigin fjár bank­ans var 10,2 pró­sent á fjórð­ungn­um, en arð­semin var 7,7 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra.

Arð­semin er yfir fjár­hags­legum mark­miðum bank­ans, sem segir helstu ástæður góðrar afkomu vera sterka tekju­mynd­un, aðhald í rekstri og jákvæða virð­is­breyt­ingu útlána, í til­kynn­ingu um upp­gjörið sem birt var eftir lokun mark­aða í dag.

Hreinar vaxta­tekjur bank­ans voru 9,2 millj­arðar á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, sem er vöxtur um 12,4 pró­sent frá fyrra ári. Hækk­unin skýrist af stækkun lána­safn­ins og hærra vaxtaum­hverf­is, segir bank­inn.

Hreinar þókn­ana­tekjur bank­ans juk­ust um 7,1 pró­sent á milli ára og námu 3,1 millj­arði, en auknar tekjur í greiðslu­miðl­un, eigna­stýr­ingu, fjár­fest­ing­ar­banka og verð­bréfa- og gjald­eyr­is­miðlun leiddu þessa hækk­un.

Eigið fé bank­ans nam 197,2 millj­örðum króna í lok mars­mán­aðar og var eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans 22,5 pró­sent að hagn­aði fyrsta árs­fjórð­ungs með­töld­um.

Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans lækk­aði á milli ára í 47,6 pró­sent úr 51,3 pró­senti á sama tíma­bili. Þetta segir bank­inn aðal­lega „vegna sterkrar tekju­mynd­unar og hag­kvæm­ari rekst­ur­s“.

Eru að breyta reglum um þátt­töku starfs­manna í útboðum

Í til­kynn­ingu bank­ans er haft eftir Birnu Ein­ars­dóttur banka­stjóra að bank­inn sé ánægður með með afkom­una á fyrsta árs­fjórð­ungi og bendir hún sér­stak­lega á að kostn­aður bank­ans hafi staðið í stað sam­an­borið við sama fjórð­ung í fyrra, þrátt fyrir 6,1 pró­sent verð­bólgu.

Auglýsing

Hún nefnir einnig þá miklu umræðu sem verið hefur í sam­fé­lag­inu um sölu­ferlið í síð­ara útboðið á hlut rík­is­ins í bank­anum og það fyr­ir­komu­lag sem not­ast var við.

„Meðal ann­ars hefur komið fram gagn­rýni á þátt­töku starfs­manna bank­ans í útboð­inu. Því tökum við alvar­lega og stendur vinna yfir við breyt­ingar á reglum bank­ans varð­andi verð­bréfa­við­skipti starfs­manna,“ er haft eftir Birnu, en áður hafði Íslands­banki veitt Kjarn­anum þau svör að verið væri að „rýna“ regl­urn­ar.

Alls átta starfs­­menn, eða aðilar tengdir starfs­­mönn­um, tóku þátt í útboð­inu sem fram fór í mars, en fyr­ir­tækja­ráð­­­gjöf og verð­bréfa­miðlun Íslands­­­­­banka voru á meðal umsjón­­­ar­að­ila þess.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent