Hver Norðmaður á 30 milljónir í norska olíusjóðnum

Norski olíusjóðurinn óx um tæp tíu prósent á fyrri helmingi ársins. Sjóðurinn á tæpt prósent af öllum hlutabréfum heims og gæti gefið hverjum Norðmanni um 30 milljónir íslenskra króna.

Norðmenn sitja á töluvert mikið af auðæfum vegna norska olíusjóðsins.
Norðmenn sitja á töluvert mikið af auðæfum vegna norska olíusjóðsins.
Auglýsing

Ávöxtun norska olíu­sjóðs­ins nam 9,4 pró­sentum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og var hún aðal­lega drifin áfram af hækkun hluta­bréfa­verðs, sam­kvæmt nýlega birtum hálfs­árs­reikn­ingi sjóðs­ins. Heild­ar­virði hans nemur 166 billjónum íslenskra króna, sem jafn­gildir 30 millj­ónum króna á hvern íbúa Nor­egs.

Hluta­bréfa­eign sjóðs­ins skil­aði honum tölu­verðri ávöxtun á tíma­bil­inu, eða um 13,7 pró­sent. Þessi hækkun var aðal­lega vegna verð­hækk­ana á hluta­bréfum í banda­rískum fyr­ir­tækj­um, sem námu 17 pró­sent, auk þess sem evr­ópsk fyr­ir­tæki hækk­uðu um 13,5 pró­sent í virði.

1,8 milljón á mann í tækniris­unum

Nær helm­ingur hluta­bréfa­eigna sjóðs­ins er í banda­rískum fyr­ir­tækj­um. Hlut­deildin er stærst í App­le, Microsoft, Alp­habet (áður Goog­le), Amazon og Face­book, en þessi fyr­ir­tæki eru gjarnan kölluð Tæknirisarnir (e. Big Tech).

Auglýsing

Sam­an­lagt virði hlut­deild­ar­innar í þessum fyr­ir­tækjum nemur 9,79 billjónum króna, en það jafn­gildir 1,8 millj­ónum íslenskra króna á hvern Norð­mann. Meira en helm­ingur þess­arar upp­hæðar er bund­inn í Apple eða Microsoft.

Tæpt pró­sent af öllum hluta­bréfum heims­ins

Sam­kvæmt vef­síð­unni Statista nam heild­ar­virði allra hluta­bréfa á 20 stærstu kaup­höllum heims­ins 110 billjónum Banda­ríkja­dala síð­ast­lið­inn júní. Ef gert er ráð fyrir að lang­flest hluta­bréf séu skráð á þessum mörk­uðum má áætla að hluta­bréfa­eign norska olíu­sjóðs­ins nemi tæpu pró­senti af öllum hluta­bréfum í heimi.

Til sam­an­burðar nemur sam­an­lagt mark­aðsvirði allra félaga á aðal­mark­aði Kaup­hall­ar­innar 2.242 millj­örðum króna, en það jafn­gildir um 0,02 billjónum Banda­ríkja­dala. Norski olíu­sjóð­ur­inn er því rúm­lega 50 sinnum verð­mæt­ari heldur en öll fyr­ir­tæki í Kaup­höll­inni á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent