Íslenskir kjósendur ekki verið hallari undir markaðshyggju síðan árið 2007

Íslenskir kjósendur eru hallari undir markaðs- og alþjóðahyggju en þeir hafa verið í meira en áratug. Raunar mælist jákvæðni gagnvart aukinni markaðshyggju sú mesta frá 2007. Á sama tíma eru vinsældir einangrunarhyggju á undanhaldi.

Jákvæðni íslenskra kjósenda gagnavart aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur stóraukist.
Jákvæðni íslenskra kjósenda gagnavart aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur stóraukist.
Auglýsing

Íslenskir kjós­endur eru nú hall­ari undir mark­aðs­hyggju og opin­gátt í alþjóða­málum en þeir hafa verið lengi. Í kosn­ing­unum 2016 og 2017 voru kjós­endur fylgj­andi auk­inni félags­hyggju, og stærra hlut­verki rík­is­ins í sam­fé­lags­gerð­inni, en þeir voru árið 2007. Í kosn­ing­unum 2021 hafði þetta breyst og fylgni kjós­enda við mark­aðs­hyggju var komin aftur á þann stað sem hún mæld­ist í kosn­ing­unum 2007, einu og hálfu ári fyrir banka­hrun­ið. 

Svipuð þróun átti sér stað þegar kemur að því að mæla afstöðu kjós­enda til alþjóða­væð­ingar og þátt­töku í alþjóða­sam­starfi. Hún mæld­ist afar jákvæð árið 2007, þegar íslenska útrásin stóð sem hæst, en dróst veru­lega saman eftir hrun og aukin ein­angr­un­ar­hyggja átti upp á pall­borðið næsta ára­tug­inn. Í kosn­ing­unum í fyrra varð svo sveifla í afstöðu kjós­enda í átt að meiri opin­gátt og mælist jákvæðni þeirra gagn­vart henni nú á svip­uðum stað og árið 2007. 

Þetta kemur fram í grein­inni „Kjós­­­endur eftir kreppu: Breyt­ing­­­ar, flökt og stöð­ug­­­leiki í Alþing­is­­­kosn­­­ing­unum 2021“ eftir Agnar Frey Helga­­­son, dós­ent við Stjórn­­­­­mála­fræð­i­­­deild Háskóla Íslands, Ólaf Þ. Harð­­­ar­­­son­­­ar, pró­­­fessor emeritus við sömu deild, Jón Gunnar Ólafs­­­son, nýdoktor við deild­ina, Evu H. Önn­u­dótt­­­ur, pró­­­fessor við stjórn­­­­­mála­fræð­i­­­deild og Huldu Þór­is­dótt­­­ur, sem er dós­ent við sömu deild. Greinin birt­ist í tíma­­­rit­inu Stjórn­­­­­mál & stjórn­­­­­sýsla fyrir skemmstu. Þar greina höf­undar síð­­­­­ustu þing­­­kosn­­­ingar út frá nokkrum lyk­il­vísum fengnum úr kjós­­­enda­könnun Íslensku kosn­­­inga­rann­­­sókn­­­ar­innar (ÍS­KOS).

Algjör við­snún­ingur í afstöðu gagn­vart ESB

Breytt afstaða Íslend­inga til mark­aðs­hyggju og alþjóða­sam­vinnu hefur birst í ýmsum könn­unum sem gerðar hafa verið und­an­far­ið. Í mars var til að mynda birtur Þjóð­ar­púls Gallup sem sýndi að 47 pró­­sent lands­­manna styddu aðild Íslands að Evr­­ópu­­sam­­band­inu (ESB) en að ein­ungis 33 pró­­sent væru henni mót­­falln­­ir.

Auglýsing
Þetta var í fyrsta sinn sem mælst hafði meiri­hluti fyrir aðild að Evr­­ópu­­sam­­band­inu hér­­­lendis frá árinu 2009. Raunar hafði það hlut­­fall sem mælst hefur hlynnt inn­­­göngu Íslands í sam­­bandið ekki mælst meira en rúm­­lega 37 pró­­sent í mán­að­­ar­­legum könn­unum sem MMR fram­­kvæmdi frá 2011 og út síð­­asta ár. Í síð­­­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð í des­em­ber í fyrra, mæld­ist stuðn­­ing­­ur­inn 30,4 pró­­sent en 44,1 pró­­sent voru á mót­i. 

Í síð­asta mán­uði gerði Pró­sent sam­bæri­lega könnun sem sýndi að 48,5 pró­sent svar­enda eru hlynntir aðild en 34,9 pró­sent and­víg­­ir. Nið­­ur­­stöð­­urnar voru því svip­aðar nið­­ur­­stöðum Þjóð­­ar­púls Gallup frá því í mars.

Sam­kvæmt könnun Pró­sents voru kjós­­endur Sam­­fylk­ing­­ar, Við­reisnar og Pírata jákvæð­astir með á bil­inu 79 til 83 pró­­sent hlynnt aðild en innan við tíu pró­­sent and­víg. Það vakti athygli að fleiri kjós­­endur Vinstri grænna voru hlynntir Evr­­ópu­­sam­­bands­að­ild en and­vígir, 40 pró­­sent á móti 33, en flokk­­ur­inn er einnig sá sem hefur flesta óákveðna í afstöð­unni, það er 24 pró­­sent. Sam­­kvæmt stefnu Vinstri grænna er „hags­munum Íslands betur borgið utan Evr­­ópu­­sam­­bands­ins en inn­­­an.“

Mót­­falln­­astir aðild Íslands að Evr­­ópu­­sam­­band­inu voru kjós­­endur Mið­­flokks­ins, eða 68 pró­sent, og þar á eftir kjós­­endur Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, 63 pró­sent. Alls 20 pró­sent Sjálf­­stæð­is­­manna voru hins vegar hlynntir aðild en aðeins átta pró­sent kjós­­enda Mið­­flokks­ins.

Nið­ur­staða ÍSKOS bendir til þess að mun fleiri breytur spili inn í þessa hug­ar­fars­breyt­ingu en ein­ungis stríðs­rekstur Rússa Í Úkra­ínu.

Þeir sem eru á móti NATO vilja samt NATO

Jákvæði Íslend­inga gagn­vart aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu hefur einnig auk­ist umtals­vert.

Sam­­kvæmt könnun sem Mask­ína vann fyrir utan­­­rík­­is­ráðu­­neytið undir lok maí­mán­aðar eru tæp­­lega 71 pró­­sent land­­manna jákvæð í garð aðildar Íslands að banda­lag­inu og hefur jákvæðnin í garð aðildar auk­ist mikið frá fyrri sam­­bæri­­legum mæl­ing­­um.

­Mesta athygli vakti, er nið­­ur­­stöð­­urnar voru brotnar niður eftir stuðn­­ingi við stjórn­­­mála­­flokka, að jákvæðni í garð aðildar að banda­lag­inu var umfram lands­­með­­al­­tal hjá þeim hópi svar­enda sem sagð­ist ætla að kjósa Vinstri græn. Flokk­­ur­inn er sá eini á þingi sem hefur það bein­línis á stefn­u­­skrá sinni að Ísland ætti að ganga úr NATO.

Það virð­ist þó litlu skipta um þessar mund­ir, en 72,3 pró­­sent þeirra sem segj­­ast ætla að kjósa flokk­inn voru jákvæð í garð aðildar Íslands að banda­lag­inu. Ein­ungis 6,4 pró­­sent þeirra sem sögð­ust ætla sér að kjósa Vinstri græn sögð­ust nei­­kvæð gagn­vart aðild Íslands að banda­lag­inu.

Þetta er gjör­breytt staða frá fyrri mæl­ing­­um. Í könnun sem Mask­ína fram­­kvæmdi í mars 2020 voru 35,4 pró­­sent væntra kjós­­enda Vinstri grænna jákvæð í garð NATO-að­ildar Íslands og 30,1 pró­­sent þeirra sögð­ust nei­­kvæð. Í mæl­ingu Mask­ínu í maí 2021 sögð­ust 38,4 pró­­sent kjós­­enda Vinstri grænna svo jákvæð í garð aðildar og 24,7 pró­­sent nei­­kvæð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent