Johnson telur sektina ekki ástæðu til afsagnar

Sektir sem Boris Johnson forsætisráðherra, Carrie Johnson eiginkona hans og Rishi Sunak fjármálaráðherra Bretlands fengu fyrir brot á sóttvarnareglum á tímum heimsfaraldurs snúa að afmælisveislu forsætisráðherra. Þeir ætla ekki að segja af sér.

Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, og Boris Johnson forsætisráðherra hafa greitt sektir vegna brota á ströngum sóttvarnarreglum á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar en telja ekki ástæði til að segja af sér embætti.
Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, og Boris Johnson forsætisráðherra hafa greitt sektir vegna brota á ströngum sóttvarnarreglum á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar en telja ekki ástæði til að segja af sér embætti.
Auglýsing

Boris John­son, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, ætla ekki að segja af sér ráð­herra­emb­ættum þrátt fyrir að hafa verið sektaðir af lög­reglu vegna brota á ströngum sótt­varna­reglum sem voru í gildi á tímum heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunn­ar.

Sunak, John­son og Carrie John­son, eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra, hafa öll verið sektuð fyrir að hafa verið við­stödd afmæl­is­veislu for­sæt­is­ráð­herra í Down­ingstræti 10 19.júní 2020. John­son er því fyrsti sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem er sektaður fyrir að brjóta gegn lög­um. Öll þrjú hafa beðist afsök­unar og greitt sekt­ina en þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar krefj­ast þess að John­son og Sunak segi af sér.

Breska lög­­reglan hefur rann­sakað tólf sam­­kvæmi á vegum breskra yfir­­­valda á þeim tíma sem strangar sótt­­varna­­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­­urs kór­ón­u­veirunn­­ar. Fyrstu 20 sekt­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleir­um. John­son var búinn að gefa það út að hann hyggð­ist upp­lýsa um það yrði hann sektað­ur.

Auglýsing

Það varð svo ljóst í gær og John­son segir að vegna sekt­ar­innar beri honum „enn rík­ari skylda til að standa við skuld­bind­ingar sín­ar“ og Sunak sagð­ist vilja „ein­beita sér að því að standa sig fyrir bresku þjóð­ina“.

Hvarfl­aði ekki að John­son í afmæl­is­veisl­unni að lög­brot væri mögu­legt

Ekki hefur verið gefið upp hversu há sektin er en John­son full­yrti í ávarpi sem hann flutti fyrir fjöl­miðla í gær að hann væri búinn að greiða hana. John­son sagð­ist skilja reiði almenn­ings vegna máls­ins

„Ég hef greitt sekt­ina og biðst enn og aftur afsök­un­ar,“ sagði John­son, aðspurður hvort hann ætl­aði að segja af sér. Hann sagð­ist vilja ein­blína á þau mik­il­vægu verk­efni sem fram undan eru, meðal ann­ars áhrif stríðs­ins í Úkra­ínu.

John­son segir að afmæl­is­veislan hafi aðeins staðið yfir í um tíu mín­útur og að það hefði ekki hvarflað að honum á þeim tíma að hann, eða aðrir við­stadd­ir, væru að ger­ast brot­leg við lög. „En að sjálf­sögðu, lög­reglan hefur kom­ist að því að svo hafi verið og ég virði nið­ur­stöðu rann­sóknar hennar að fullu,“ sagði John­son.

Mótmælendur við Downingstræti í gær eftir að upplýst hafði verið um sektir Johnson og Sunak.Mynd: EPA

„Bret­land verð­skuldar meira, þeir verða að víkja“

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar saka John­son og Sunak um að ljúga að almenn­ingi um þátt­töku þeirra í sam­kvæmum á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í Down­ingstræti 10. Keir Star­mer, leið­togi Verka­lýðs­flokks­ins, fer þar fremst í flokki.

„Hugs­anir mínar eru hjá öllum þeim sem gerðu hið rétta. Þetta er eins og löðr­ungur fyrir þau sem færðu fórn­ir, hittu ekki ætt­ingja, gátu ekki verið við­stödd jarð­ar­far­ir, brúð­kaup eða jafn­vel fæð­ingu barna sinna. Seku menn­irnir eru for­sætisæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra, þeir van­virtu allar þessar fórn­ir. Þetta er í fyrsta sinn sem sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra brýtur lög. Svo laug hann að almenn­ingi um það. Bret­land verð­skuldar meira, þeir verða að víkja“ sagði Star­mer í sam­tali við BBC.

Flestir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa lýst yfir stuðn­ingi við John­son og Sunak. Grant Shapps sam­göngu­ráð­herra segir að John­son „dauð­skammist sín“ vegna sekt­ar­innar en að hann hafi ekki brotið lög af ásettu ráði. „Allir eru mennsk­ir. Fólk gerir mis­tök,“ segir Shapps.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki