Jón Gunnarsson segir að samstaða sé í ríkisstjórn um verklag við brottvísun

Dómsmálaráðherra segir að enginn ráðherra hafi komið fram með formlega tillögu um það að það verði unnið eftir öðrum ferlum við brottvísun flóttamanna en þeim sem hann styðst við. Það kalli hann „samstöðu í ríkisstjórninni“.

Jón Gunnarsson er dómsmálaráðherra.
Jón Gunnarsson er dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra segir að eng­inn ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands hafi farið fram á að staðið yrði að fyr­ir­hug­aðri brott­vísun flótta­manna úr landi með öðrum hætti en hann hefur boð­að. Það kalli hann sam­stöðu um mál­ið. Þetta kom fram í hádeg­is­fréttum RÚV en rætt var við Jón að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í morg­un. 

Hann segir að mörg hund­ruð manns hafi verið vísað frá Íslandi í tíð þess­arar rík­is­stjórnar á sama grund­velli og nú stendur til að vísa stórum hópi flótta­manna úr landi án þess að gerð hafi verið athuga­semd við það vinnu­ferli. 

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV í dag að hóp­ur­inn teldi undir 200 manns, en ekki tæp­lega 300 líkt og dóms­mála­ráð­herra hefði áður sagt. Að hennar beiðni hafi dóms­mála­ráð­herra komið með minn­is­blað inn á rík­is­stjórn­ar­fund­inn í morg­un. Aðspurð hvort ein­hverjum verði vísað á brott á meðan staðan sé eins og hún er sagði Katrín að sumir væru þegar að fara sjálf­vilj­ugir eftir að máls­með­ferð þeirra lauk. „Önnur eru að bíða mögu­lega eftir frek­ari með­ferð þannig að það er ekki hægt að tala um þetta sem hóp heldur verður að horfa á þetta sem ólíka ein­stak­linga.“

Sagð­ist hafa gert „al­var­legar athuga­semd­ir“

Jón sagði í Kast­ljósi á þriðju­dag að sam­staða væri í rík­is­stjórn um mál­ið, að reglur væru skýrar og að engar breyt­ingar væru fyr­ir­sjá­an­legar á þeirri ákvörð­un. 

Guð­mundur Ingi Guð­brands­­son, félags- og vinn­u­­mark­aðs­ráð­herra og vara­for­maður Vinstri grænna, bar það til baka í tíu­fréttum RÚV sama kvöld og sagði það rangt að sam­­staða væri um mál­ið. Hann sagð­ist hafa gert „al­var­­­legar athuga­­­semd­ir“ við þá veg­­­ferð sem Jón væri á og að hann væri ekki ánægður með það hvernig Jón hafi haldið á mál­inu. Guð­­mundur Ingi sagði að fleiri ráð­herrar hafi gert athuga­­semdir við veg­­ferð Jóns á rík­­is­­stjórn­­­ar­fund­inum en vildi ekki segja hverjir það voru. Þeir þyrftu sjálfir að greina frá því. 

Auglýsing
Jón sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að það eina sem hann hefði sagt í Kast­ljósi væri að það sé sam­staða innan rík­is­stjórn­ar­innar um að vinna sam­kvæmt þeim verk­ferlum sem unnið hefur verið eft­ir. „Það hefur engin borið upp breyt­ing­ar­til­lögu við mig um að gera þetta með ein­hverjum öðrum hætt­i. 

Varð­andi gagn­rýni Guð­mundar Inga sagði Jón að menn virði sínar skoð­an­ir. „Það er bara eins og gengur og ger­ist við rík­is­stjórn­ar­borðið um hin ýmsu mál. Og menn geta haft þær skoð­anir að það eigi að skoða ein­hver mál ein­stak­linga sem hér eru undir með ein­hverjum öðrum hætti. En það hefur engin komið fram með ein­hverja form­lega til­lögu um það að það verði unnið eftir öðrum ferlum og það kalla ég sam­stöðu í rík­is­stjórn­inn­i.“

Aðspurð um ummæli Guð­mundar Inga, og full­yrð­ingu hans um að Jón hefði sagt ósatt um sam­stöðu innan rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sagði Katrín við RÚV að hann hefði verið að segja að ráð­herr­arnir tveir væru ekki sam­mála um nálgun í þessum mál­um. „Ég sé ekki að það eigi að koma mjög á óvart að þessir flokkar seú ekki endi­lega sam­mála í þessum mál­u­m.“

Ætla að leggja fram frum­varp

Þing­­flokkar Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, Flokks fólks­ins, Pírata og Við­reisnar greindu frá því í morgun að þeir ætli að leggja sam­eig­in­­lega fram frum­varp til að bregð­­ast við stöðu þeirra tæp­­lega ein­stak­l­inga sem nú stendur til að senda úr landi með fjölda­brott­vís­un. 

Í til­­kynn­ingu frá þeim sagði að flokk­­arnir leggi til að nýtt ákvæði verði sett til bráða­birgða sem felur í sér að dráttur á máls­­með­­­ferð umsækj­enda um alþjóð­­lega vernd, sem varð vegna heims­far­ald­­urs COVID-19, verði ekki tal­inn á ábyrgð umsækj­end­anna sjálfra og því skuli taka umsóknir þeirra til efn­is­­legrar með­­­ferðar hafi þeir verið hér í 12 mán­uði eða leng­­ur. „Þing­­flokk­­arnir leggja einnig til að umsækj­endur sem sóttu um vernd á meðan heims­far­aldur COVID-19 stóð sem hæst og hafa verið hér á landi í 18 mán­uði eða leng­­ur, fái dval­­ar­­leyfi á grund­velli mann­úð­­ar­­sjón­­ar­miða.“

Frum­varpið er í yfir­­­lestri verður dreift á Alþingi á mán­u­dag­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent