Alls sóttu 22 um embætti framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem auglýst var laust til umsóknar 3. desember 2021 en umsóknarfrestur rann út 20. desember síðastliðinn. Þrír umsækjendur hafa dregið umsóknir sínar til baka. Landskjörstjórn mun skipa í embættið.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í dag.
Karl Gauti Hjaltason, frambjóðandi fyrir Miðflokkinn í Suðvesturkjördæmi í síðustu kosningum og fyrrverandi þingmaður, er einn umsækjenda en hann kærði endurtalningu atkvæða og meðferð þeirra í Norðvesturkjördæmi til lögreglu í lok september. Karl Gauti er einn þeirra fimm frambjóðenda sem hlaut jöfnunarþingsæti eftir að upprunalegar lokatölur í Norðvesturkjördæmi voru kynntar skömmu eftir klukkan sjö að morgni 26. september síðastliðins. Síðar sama dag tók formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi þá ákvörðun að endurtelja atkvæðin, sú endurtalning skilaði nýrri niðurstöðu og fimmmenningarnir misstu þingsæti sitt til fimm flokksfélaga sinna.
Sjálfstæð stjórnsýslunefnd sett á fót
Með nýjum kosningalögum verður sett á fót sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga til Alþingis og sveitarstjórna, forsetakjörs og þjóðaratkvæðagreiðslna, að því er fram kemur í tilkynningunni.
„Verkefni landskjörstjórnar eru undirbúningur og framkvæmd almennra kosninga, upplýsingagjöf og fræðsla til almennings, frambjóðenda, fjölmiðla, kjörstjórna og annarra, samvinna og samráð við viðeigandi aðila um framkvæmd kosninga, kosningarannsóknir og framþróun kosningaframkvæmdar, ráðgjöf til stjórnvalda um kosningar, gerð tillagna að reglusetningu málefnasviðsins og alþjóðlegt samstarf á sviði kosningamála. Loks er það verkefni landskjörstjórnar að annast samræmingu verklags kjörstjórna með því að birta fyrirmæli um undirbúning og framkvæmd kosninga. Framkvæmdastjóri verður forstöðumaður landskjörstjórnar og hefur umsjón með daglegum störfum hennar,“ segir á vef Stjórnarráðsins.
Umsækjendur eru:
- Anton Helgi Steinarsson, verslunarstjóri
- Ástríður Jóhannesdóttir , lögfræðingur
- Björn Kristjánsson, viðskiptafræðingur
- Bogi Agnar Gunnarsson, lögfræðingur
- Einar Baldvin Stefánsson, lögfræðingur
- Einar Mar Þórðarson, sérfræðingur
- Gísli M. Auðbergsson, hæstaréttarlögmaður
- Guðlaugur Jónasson
- Hrönn Ingólfsdóttir, sérfræðingur
- Jóhann Steinar Ingimundarson, viðskiptafræðingur
- Jón Eggert Guðmundsson, líffræðingur og kerfisstjóri
- Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur, MPM
- Karl Gauti Hjaltason, fyrrv. sýslumaður og formaður yfirkjörstjórnar
- Katrín Kristjana Hjartardóttir, sérfræðingur
- Kolbrún Garðarsdóttir, lögmaður
- Salvör Sigríður Jónsdóttir, lögfræðingur
- Stefán Örvar Sigmundsson, nefndarmaður
- Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, lögmaður og framkvæmdarstjóri
- Vilhjálmur Bergs, lögmaður