Karl Gauti sækist eftir embætti framkvæmdastjóra landskjörstjórnar

Tuttugu og tveir sóttu um embætti framkvæmdastjóra landskjörstjórnar. Þrír umsækjendur hafa dregið umsóknir sínar til baka.

Karl Gauti
Auglýsing

Alls sóttu 22 um emb­ætti fram­kvæmda­stjóra lands­kjör­stjórnar sem aug­lýst var laust til umsóknar 3. des­em­ber 2021 en umsókn­ar­frestur rann út 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Þrír umsækj­endur hafa dregið umsóknir sínar til baka. Lands­kjör­stjórn mun skipa í emb­ætt­ið.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Karl Gauti Hjalta­son, fram­bjóð­andi fyrir Mið­flokk­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum og fyrr­ver­andi þing­mað­ur, er einn umsækj­enda en hann kærði end­ur­taln­ingu atkvæða og með­ferð þeirra í Norð­vest­ur­kjör­dæmi til lög­reglu í lok sept­em­ber. Karl Gauti er einn þeirra fimm fram­­bjóð­enda sem hlaut jöfn­un­­ar­­þing­­sæti eftir að upp­­runa­­legar loka­­tölur í Norð­vest­­ur­­kjör­­dæmi voru kynntar skömmu eftir klukkan sjö að morgni 26. sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins. Síðar sama dag tók for­­maður yfir­­­kjör­­stjórnar í Norð­vest­­ur­­kjör­­dæmi þá ákvörðun að end­­ur­telja atkvæð­in, sú end­­ur­taln­ing skil­aði nýrri nið­­ur­­stöðu og fimm­­menn­ing­­arnir misstu þing­­sæti sitt til fimm flokks­­fé­laga sinna.

Auglýsing

Sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd sett á fót

­Með nýjum kosn­inga­lögum verður sett á fót sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd sem hefur yfir­um­sjón með fram­kvæmd kosn­inga til Alþingis og sveit­ar­stjórna, for­seta­kjörs og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

„Verk­efni lands­kjör­stjórnar eru und­ir­bún­ingur og fram­kvæmd almennra kosn­inga, upp­lýs­inga­gjöf og fræðsla til almenn­ings, fram­bjóð­enda, fjöl­miðla, kjör­stjórna og ann­arra, sam­vinna og sam­ráð við við­eig­andi aðila um fram­kvæmd kosn­inga, kosn­inga­rann­sóknir og fram­þróun kosn­inga­fram­kvæmd­ar, ráð­gjöf til stjórn­valda um kosn­ing­ar, gerð til­lagna að reglu­setn­ingu mál­efna­sviðs­ins og alþjóð­legt sam­starf á sviði kosn­inga­mála. Loks er það verk­efni lands­kjör­stjórnar að ann­ast sam­ræm­ingu verk­lags kjör­stjórna með því að birta fyr­ir­mæli um und­ir­bún­ing og fram­kvæmd kosn­inga. Fram­kvæmda­stjóri verður for­stöðu­maður lands­kjör­stjórnar og hefur umsjón með dag­legum störfum henn­ar,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Umsækj­endur eru:

  • Anton Helgi Stein­ars­son, versl­un­ar­stjóri
  • Ástríður Jóhann­es­dóttir , lög­fræð­ingur
  • Björn Krist­jáns­son, við­skipta­fræð­ingur
  • Bogi Agnar Gunn­ars­son, lög­fræð­ingur
  • Einar Bald­vin Stef­áns­son, lög­fræð­ingur
  • Einar Mar Þórð­ar­son, sér­fræð­ingur
  • Gísli M. Auð­bergs­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður
  • Guð­laugur Jón­as­son
  • Hrönn Ing­ólfs­dótt­ir, sér­fræð­ingur
  • Jóhann Steinar Ingi­mund­ar­son, við­skipta­fræð­ingur
  • Jón Egg­ert Guð­munds­son, líf­fræð­ingur og kerf­is­stjóri
  • Jón Stein­dór Valdi­mars­son, lög­fræð­ing­ur, MPM
  • Karl Gauti Hjalta­son, fyrrv. sýslu­maður og for­maður yfir­kjör­stjórnar
  • Katrín Krist­jana Hjart­ar­dótt­ir, sér­fræð­ingur
  • Kol­brún Garð­ars­dótt­ir, lög­maður
  • Sal­vör Sig­ríður Jóns­dótt­ir, lög­fræð­ingur
  • Stefán Örvar Sig­munds­son, nefnd­ar­maður
  • Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, lög­maður og fram­kvæmd­ar­stjóri
  • Vil­hjálmur Bergs, lög­maður

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent