Kim Kardashian borgar sig út úr auglýsingarklandri

Þegar Kim Kardashian sagði fylgjendum sínum á Instagram að það væri sniðugt að fjárfesta með rafmynt braut hún lög og reglur.

Kim Kardashian er gangandi auglýsing fyrir allt milli himins og jarðar. Líka rafmynt.
Kim Kardashian er gangandi auglýsing fyrir allt milli himins og jarðar. Líka rafmynt.
Auglýsing

Stærstu svoköll­uðu áhrifa­valdar heims fá greitt fyrir flest það sem þeir klæðast, borða og bera á sig og á sér. Kim Kar­dashi­an, ein allra stærsta stjarnan í þessum bransa, er þar engin und­an­tekn­ing en með því að aug­lýsa fjár­fest­ingar með raf­mynt kom hún sér hins vegar í kland­ur. En þó ekki meira en svo að hún gat ekki borgað sig út því.

Kland­rið er til­komið vegna þess að það gilda alveg sér­stakar reglur vest­an­hafs um hvernig má aug­lýsa fjár­fest­ing­ar. Og þegar Kar­dashian ýtti að fylgj­endum sínum á sam­fé­lags­miðlum „við­skipta­tæki­færum“ tengdum raf­mynt braut hún gegn þessum reglum – fyrst og fremst vegna þess að ekki fylgdi sög­unni að hún fengi greitt fyrir aug­lýs­ing­una.

Málið end­aði á borði örygg­is- og við­skipta­nefnd­ar, The Securities and Exchange Commission (SEC), nefndar á vegum hins opin­bera sem fylgist grannt með við­skipta­háttum hvers­kon­ar. Kar­dashian og nefndin hafa nú náð sáttum sem fela í sér að stjarnan greiðir 1,26 millj­ónir dala, 182 millj­ónir króna, í sekt.

Auglýsing

Þegar Ether­eumMax kom á markað í maí í fyrra hóf fjöldi þekktra ein­stak­linga að vekja athygli á fjár­fest­ing­ar­tæki­færum tengdum raf­mynt­inni. Í júní sama ár birti Kim Kar­dashian færslu á Instagram um hversu góð fjár­fest­ing fælist í Ether­eumMax. Nú hefur komið á dag­inn að hún fékk 250 þús­und doll­ara, um 36 millj­ónir króna, fyr­ir. Upp­lýst hefur verið að greiðslan hafi borist henni í gegnum „milli­göngu­mann“.

„Þetta er ekki fjár­mála­ráð­gjöf,“ sagði Kar­dashian á Instagram, „en ég er að deila því sem vinir mínir hafa sagt mér um Ether­eumMax!“

Örygg­is- og við­skipta­nefndin hefur ítrekað varað fólk við slíkum aug­lýs­ingum og einnig um hríð varað þekkt fólk við að taka þátt í að aug­lýsa fjár­fest­ing­ar­tæki­færi tengd raf­mynt. Slíkt þurfi að gera að vand­lega athug­uðu máli og með ýmsa fyr­ir­vara fyrir neyt­endur í fartesk­inu.

„Mál Kar­dashian ætti að vera öðru þekktu fólki víti til varn­aðar og minna það á að sam­kvæmt lögum verður það að gefa almenn­ingi upp­lýs­ingar um hvenær og hversu mikið það fær greitt þegar það kynnir fjár­fest­inga­boð sem þessi,“ segir í til­kynn­ingu frá nefnd­inni.

Sátt­ar­greiðslan sem Kar­dashian þarf að greiða þykir ekki há en for­maður örygg­is- og við­skipta­nefnd­ar­innar segir að hún hafi verið sam­starfs­fús og sýnt í verki að hún vildi aðstoða við rann­sókn máls­ins.

Frétt New York Times um mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent