Samkvæmt heimildum Kjarnans mun Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar tilkynna um framboð til formanns flokksins á opnum fundi sem hún hefur boðað til í Iðnó og hefst klukkan 16 síðdegis í dag.
Kristrún hefur verið orðuð við framboð til formanns nánast frá því að hún tilkynnti um stjórnmálaþátttöku í fyrra, en hún var kjörin á þing í kosningunum í september 2021. Hún hefur legið undir feldi í sumar og sagst vera íhuga formannsframboð og að tíðinda yrði að vænta í ágúst.
Í tilkynningu sem Kristrún sendi út í morgun kom fram að hún hafi notað sumarið í íhugun og samtöl um stöðuna í stjórnmálunum. „Nú vil ég segja frá hvernig ég tel að megi endurvekja von og trú fólks á að það sé hægt að breyta og reka samfélagið okkar betur. Og hvernig ég tel að Samfylkingin geti náð aftur vopnum sínum með því að leggja ofuráherslu á kjarnamálin og með því að ná aftur virkari tengingu við fólkið í landinu.“
Þar er haft eftir Kristrúnu að frá því að hún var kjörin á Alþingi hafi hún haldið alls 37 fundi með fólki í heimabyggð þess undir yfirskriftinni „Samræða um framtíðina“. „Ég vil sækja mér efnivið og innblástur beint til fólksins sem ég starfa fyrir. Það er ekki gert úr ræðustól heldur með samtölum í augnhæð.“
Kjarninn greindi frá því í fréttaskýringu 8. júlí að nær engar líkur væru á því að Dagur ætlaði sér að taka slaginn og hann staðfesti það opinberlega í gær í viðtali við Fréttablaðið. Þar sagði hann meðal annars: „Ég hef auðvitað skynjað mikinn stuðning. Fólk hefur kallað eftir nýrri ríkisstjórn sem yrði mynduð frá vinstri yfir á miðjuna svipað og í Reykjavík. En ég er að hefja nýtt kjörtímabil í borginni og á ekki sæti á þingi. Þess vegna var langsótt að ég byði mig fram til formennsku í flokknum.“
Verður yngsti formaður flokksins frá upphafi
Kristrún er 34 ára hagfræðingur og hóf fyrst stjórnmálaþátttöku í fyrra, þegar hún ákvað að gefa kost á sér til að leiða annað Reykjavíkurkjördæmið fyrir Samfylkinguna í þingkosningunum í september. Áður hafði hún starfað í fjármálageiranum.
Kristrún hefur sérstaklega vakið athygli undanfarið ár fyrir að gefa jafnaðarmannastefnunni dýpt í umræðum um efnahagsmál.
Raunar var byrjað að tala Kristrúnu upp sem næsta formann Samfylkingarinnar nánast samstundis og hún gekk í flokkinn til að bjóða fram fyrir hann í Reykjavík í aðdraganda kosninganna í fyrra. Meðal annars vegna þessa þrýstings fór Kristrún ein í hringferð um landið fyrr á þessu ári og hélt opna fundi með fólki í þeirra heimabyggð, á sama tíma og aðrir þingmenn nýttu kjördæmadaga til að ferðast saman um landið til að hitta kjósendur.
Verði Kristrún næsti formaður Samfylkingarinnar verður hún lang yngst til að gegna því embætti. Það met átti Árni Páll Árnason áður, en hann var 46 ára við embættistöku (Margrét Frímannsdóttir, sem var talsmaður flokksins í árdaga hans var reyndar yngri, 44 ára).
Í síðustu könnun Gallup á fylgi stjórnmálaflokka mældist Samfylkingin með 13,7 prósent fylgi, eða 3,8 prósentustigum meira en flokkurinn fékk í fyrrahaust. Það myndi þýða að flokkur yrði fjórði stærsti flokkur landsins ef kosið yrði í dag á eftir Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Pírötum.