Uber haslar sér völl í heilbrigðisþjónustu

Ástralskir læknar geta nú bókað akstur fyrir sjúklinga sína á læknastofur og sjúkrahús hjá farveitunni Uber. Margir hafa lýst yfir efasemdum um að fyrirtækinu sé treystandi fyrir heilbrigðisupplýsingum fólks.

Sjúklingar þurfa ekki að eiga snjallsíma til að nýta sér þjónustu Uber Health.
Sjúklingar þurfa ekki að eiga snjallsíma til að nýta sér þjónustu Uber Health.
Auglýsing

Vel­komin í Uber Health! Nýja þjón­ustu far­veit­unnar Uber sem frá og með deg­inum í dag verður í boði fyrir lækna í Ástr­al­íu. Það eru þó ekki læknar sem þjón­ustan bein­ist fyrst og fremst að heldur sjúk­lingar þeirra.

Með Uber Health, sem þegar er í boði í Banda­ríkj­un­um, er hægt að „skipu­leggja, stjórna og borga fyrir akstur sjúk­linga og heil­brigð­is­starfs­manna á einum staf­rænum stað og tryggja þannig hrað­ari og straum­línu­lag­aðri þjón­ust­u,“ segir í til­kynn­ingu frá Uber um starf­sem­ina.

Auglýsing

Þetta hljómar eflaust vel. Lækn­ir­inn getur pant­aðan far fyrir sjúk­ling sinn fram í tím­ann svo hann kom­ist örugg­lega í bók­aðan tíma. Sjúk­lingar sem eru ekki færir um að aka sjálfir og treysta sér ekki í almenn­ings­sam­göng­ur, m.a. vegna smitótta, geta beðið rólegir eftir að Uber-bíl­stjóri keyri þá milli staða.

Sjúk­lingar þurfa ekki Uber-app­ið, ef þeir hafa ekki snjall­sím­tæki, heldur geta fylgst með öllu í gegnum SMS-skila­boð. Þannig er ljóst að þessi nýja þjón­usta bein­ist ekki síst að eldra fólki – fólki sem á ekki bíl, getur ein­hverra hluta vegna ekki ekið bíl og er ekki með nýj­ustu gerð af síma.

Margir sér­fræð­ingar í tækni­geir­anum hafa lyft brúnum yfir þess­ari nýju þjón­ustu í Ástr­al­íu. Þeir efast um að Uber sé treystandi fyrir heil­brigð­is­upp­lýs­ingum vænt­an­legra far­þega sinna. Læknar hafa einnig lagt orð í belg í þessum efn­um. Einn þeirra, sem einnig er sér­fræð­ingur í með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga, segir við dag­blaðið Sydney Morn­ing Her­ald að lög um geymslu og öryggi sjúkra­gagna séu almennt veik­ari í Ástr­alíu en í t.d. Evr­ópu. „Það er þess vegna sem mörg fyr­ir­tæki eru að reyna að kom­ast inn í heil­brigð­is­þjón­ustu þar sem það er mjög arð­væn­leg­t.“

Hylmdu yfir stórum gagna­leka

Tals­menn Uber segj­ast lofa því að öll gögn um sjúk­linga sem þeir munu fá vegna þjón­ust­unnar verði geymd með öruggum hætti. En það róar ekki taugar allra því fyr­ir­tækið hefur í gegnum tíð­ina orðið upp­víst að ósann­indum og belli­brögð­um. Árið 2016 varð umfangs­mik­ill gagna­leki hjá Uber sem stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins reyndu með ýmsum ráðum að hylma yfir. Hakk­arar komust yfir gögn um 57 millj­ónir not­enda far­þjón­ustu Uber. Í þeim hópi voru m.a. Ástr­a­l­ar. Ekki komst upp um gagna­lek­ann fyrr en ári seinna.

Tals­maður Uber í Ástr­alíu segir að með Uber Health muni skap­ast mörg atvinnu­tæki­færi. Ráðnir verði fleiri bíl­stjórar í sam­ræmi við eft­ir­spurn. Uber seg­ist hafa ákveðið að bjóða þjón­ust­una þar sem vöntun væri á tækni­lausnum á þessu sviði.

Auglýsing

Fyrir nokkrum árum voru sjúkra­skrár gerðar raf­rænar í Ástr­al­íu. Til­gang­ur­inn var að treysta stoðir heil­brigð­is­þjón­ust­unnar svo að heil­brigð­is­starfs­menn á hvaða stofnun sem er, hvar sem er í land­inu, gætu nálg­ast upp­lýs­ingar um sjúk­linga sína.

En einn af hverjum tíu Áströlum treystir ekki yfir­völdum fyrir heil­brigð­is­upp­lýs­ingum sínum og fór fram á að þær yrðu ekki settar í hinn raf­ræna gagna­grunn.

Munu þeir treysta Uber?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent