Landskunnur leikari gefur út ljóðaplötu

„Ljóðið hefur fylgt mér frá því ég var pjakkur fyrir norðan og allar götur síðan,“ segir Arnar Jónsson leikari, sem hefur undanfarin ár safnað saman sínum uppáhaldsljóðum og hyggst nú gefa út eigin upplestur á þeim, bæði á vínyl og rafrænt.

Arnar Jónsson leikari áformar að gefa út plötu með eigin upplestri á ljóðum úr ólíkum áttum, sem hann segist vilja veita framhaldslíf.
Arnar Jónsson leikari áformar að gefa út plötu með eigin upplestri á ljóðum úr ólíkum áttum, sem hann segist vilja veita framhaldslíf.
Auglýsing

„Ljóð í upp­á­haldi“ er drauma­verk­efni Arn­ars Jóns­sonar leik­ara en hann hefur und­an­farin ár safnað saman sínum eft­ir­lætis ljóðum sem hann nú áætlar að gefa út bæði á vínyl en einnig á staf­rænu formi fyrir þau sem eru búin að týna plötu­spil­ar­anum eða vilja hlusta í bílnum eða uppi í rúmi.

Hann hefur fengið til liðs við sig úrvals­hóp til að láta þennan draum sinn ræt­ast og hefur hafið söfnun fyrir kostn­aði við útgáfu á þessu verki á Karol­ina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ljóðið hefur fylgt mér frá því ég var pjakkur fyrir norðan og allar götur síð­an. Í barna­skól­anum á Akur­eyri voru „Skóla­ljóð­in“ lesin og lærð, og auð­vitað var það örvun að fá þar verð­laun fyrir að læra ljóð. Í mennta­skóla tókum við okkur nokkur saman og stofn­uðum ljóða­klúbb og þá var áhug­inn vak­inn fyrir alvöru. Fljót­lega eftir að ég kom til Reykja­víkur fór ég að flytja ljóð opin­ber­lega við hin ýmsu tæki­færi, m.a. í útvarpi, á opin­berum sam­komum, við jarð­ar­farir og einnig unnið tölu­vert með tón­list­ar­fólki.

Auglýsing

Fyrir ekki svo löngu laust þeirri hugsun niður að gaman væri að kinka kolli til minna fjöl­mörgu góðra og geng­inna fyr­ir­mynda eða „mentora“ í ljóða­lestri með því að gefa út vín­yl­plötu með safni ljóða úr ólíkum átt­um, sem mér vit­an­lega hefur ekki verið gert um langt skeið,“ segir Arn­ar.

Hann segir verkið vera safn ljóða úr ólíkum átt­um, spurður um hvort eitt­hvað þema hafi verið ráð­andi við val ljóð­anna.

Mynd: Aðsend

„Þar verða mörg þekkt ljóð íslenskrar bók­mennta­sögu, en einnig lítt þekkt­ari meist­ara­verk. Sum eru risa­stór og erf­ið, önnur aðeins fal­legt and­ar­tak. Því veit ég veit varla hvort hægt er að tala um sér­stakt „þema“, kannski helst að þessi ljóð hafa ómað í höfð­inu á mér í ára­tugi, önnur skem­ur, en þau hafa öll talað til mín, hvert með sínum hætti. Einnig má finna í bland nýleg ljóð sem hafa kallað á athygli mína.

Í skarkala nútím­ans á ljóðið undir högg að sækja en ég held að þess hljóð­láti og hóg­væri tónn geti náð athygli fólks og jafn­vel átt við það erindi, eitt ljóð fyrir svefn­inn væri öllum hollt! Alla tíð höfum við átt frá­bær ljóð­skáld og unga kyn­slóðin er þar engin eft­ir­bát­ur. Þannig vona ég að ástríðan fyrir því að útbreiða fagn­að­ar­er­indi ljóðs­ins falli í góðan og frjóan jarð­veg hjá sem flestum ald­urs­hóp­um. Mig langar að deila þeim með ykk­ur. Skila þeim af mér, ef svo má segja. Ég vil að þau eigi sér fram­halds­líf,“ segir Arn­ar.

Hér er hægt að styrkja verk­efnið og eign­ast ein­tak

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk