Drífa Snædal forseti ASÍ gerir launamun að umtalsefni í föstudagspistli sínum í dag. Hún segir meðal annars að skilyrða ætti hæstu laun við þau lægstu.
Hún byrjar á því að spyrja hvað fulltrúum Samtaka atvinnulífsins finnist vera eðlilegur launamunur.
„Ef ég væri í hlutverki fréttaspyrils myndi ég spyrja þessarar spurningar. Á hverju ári fáum við fréttir af ofurlaunum og handritið er í raun ritað fyrirfram,“ skrifar hún.
Þolinmæði fyrir misskiptingu hefur aukist stórkostlega
Drífa segir að þau í verkalýðshreyfingunni hafi nú þegar bent á ranglætið og sett í samhengi við almenn laun í landinu og kjarasamninga og á móti ómi svo árvissi söngurinn um ábyrgð; að hlutfallslega hækkunin sé ekki svo mikil og „fleiri kreistar réttlætingar í svipuðum dúr“.
Hún telur að hugtakið „hlutfallslega“ sé þarna lykilorð. „10 prósent hækkun á 400 þúsund króna laun eru 40 þúsund krónur en 5 prósent hækkun á fjórar milljónir eru 200 þúsund krónur. Minni hlutfallsleg hækkun á ofurlaun getur munað góðri utanlandsferð. Það sem eftir stendur í umræðunni er; hver á launamunurinn að vera? Fyrir hvernig ábyrgð og störf á að greiða meira og hversu mikið?“ spyr hún.
„Þegar umræða síðustu áratuga er rakin kemur í ljós að þolinmæði okkar fyrir misskiptingu hefur aukist stórkostlega. Um miðja síðustu öld var til umræðu að enginn fengi meira en tvöföld laun þess lægst launaða. Síðan þróaðist umræðan yfir í að þreföld laun væru eðlilegur munur og síðan fjórföld. Nú erum við svo komin á stað þar sem engar skynsamlegar reglur virðast gilda um launamun.“
Skilyrða ætti hæstu laun við þau lægstu
Sjálf segist Drífa alltaf hafa verið hrifin af þeirri hugmynd að þau sem eru með hæstar tekjur hafi beinan hag af því að hækka lægstu laun. Að skilyrða hæstu laun við þau lægstu. Ágætis byrjun væri að ríkið setti það inn í eigendastefnu sína hvert ásættanlegt launahlutfall væri innan þeirrar starfsemi sem Íslendingar eigi allir.
Drífa bendir á að í eigendastefnunni standi að laun séu hófleg, samkeppnishæf, en ekki leiðandi og taki mið af opinberu eignarhaldi.
Leggur hún því til viðbótina: „Laun og hlunnindi æðstu stjórnenda skuli aldrei vera hærri en ferföld lágmarkslaun verkafólks samkvæmt almennum kjarasamningum.“
Drífa segir að þetta yrði stefnumótandi og myndi losa Íslendinga út úr andlausri árvissri umræðu um ofurlaun. „Almenni markaðurinn ætti svo auðvitað að tileinka sér þetta sömuleiðis. Í raun er ekki eftir neinu að bíða þar.“