Sigurður Hannesson með 1,5 milljónir á mánuði fyrir stjórnarformennsku í Kviku

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins gegnir stjórnarformennsku í Kviku banka samhliða starfi sínu sem framkvæmdastjóri stærstu aðildarsamtaka Samtaka atvinnulífsins. Hann er þriðji launahæsti stjórnarformaður Kauphallarinnar.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og stjórnarformaður Kviku banka.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og stjórnarformaður Kviku banka.
Auglýsing

Sig­urður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðn­að­ar­ins, var með tæp­lega 1,5 millj­ónir króna í laun og líf­eyr­is­greiðslur fyrir að sinna starfi stjórn­ar­for­manns Kviku banka, og fyrir að sitja í und­ir­nefndum stjórn­ar, á árinu 2021. Í fyrra fékk hann alls 17,5 millj­ónir króna fyrir þau störf en fékk 11,7 millj­ónir króna fyrir þau árið áður. Þess ber þó að gera að Sig­urður var fyrst kjör­inn í stjórn Kviku banka á aðal­fundi hans í lok mars 2020 og sat því ekki í stjórn allt það ár. Hann hefur verið fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðn­að­ar­ins frá miðju ári 2017 en starf­aði þar áður um nokk­urra ára skeið sem fram­kvæmda­stjóri á eigna­stýr­ing­ar­sviði Kviku banka.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Kviku banka.

Sam­tök iðn­að­ar­ins birta ekki árs­reikn­ing með upp­lýs­ingum um launa­kjör fram­kvæmda­stjóra en sam­kvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar í fyrra, sem sýndi laun á árinu 2020, var Sig­urður með 3,3 millj­ónir króna í tekjur að með­al­tali á mán­uði. Gera má ráð fyrir að þær tekjur hafi auk­ist umtals­vert í fyrra í ljósi þess að hann sat allt árið sem stjórn­ar­for­maður Kviku banka og vegna þess að greiðslur fyrir það starf hækk­uðu milli ára.

Mikið gekk á í rekstri félags­ins í fyrra en Kvika, TM og Lyk­ill sam­ein­uð­ust í mars í fyrra. Heild­ar­eignir sam­stæð­unnar juk­ust um 100 pró­sent milli ára og voru 246 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Hagn­aður fyrir skatta var 10,5 millj­arðar króna.

Sex með meira en milljón á mán­uði

Ein­ungis tveir stjórn­ar­for­menn voru með hærri mán­að­ar­tekjur en Sig­urður á síð­asta ári: Arnar Þór Más­son sem tók við sem stjórn­ar­for­maður Mar­el, langstærsta félags Kaup­hallar Íslands, á árinu var með um 1,9 millj­ónir króna á mán­uði og Brynjólfur Bjarna­son, stjórn­ar­for­maður Arion banka, var með um 1,7 millj­ónir króna á mán­uði fyrir að sinna stjórn­ar­for­mennsku og störfum fyrir und­ir­nefndir stjórn­ar.

Auglýsing
Alls sex stjórn­ar­for­menn þeirra 20 félaga sem skráð eru á aðal­markað fengu yfir eina milljón króna í greiðslur að með­al­tali á mán­uði á síð­asta ári en 14 voru með tekjur undir því marki. Flestir voru með tekjur á bil­inu 680 til 950 þús­und krónur á mán­uði fyrir að sinna stjórn­ar­for­mennsku. 

Um er að ræða auka­starf sem fólk tekur að sér sam­hliða öðrum störfum eða annarri stjórn­ar­setu. Í engu til­felli er stjórn­ar­for­mennska í skráðu félagi það eina sem við­kom­andi ger­ir. 

Launa­skrið hjá for­stjórum skráðra félaga

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að með­­al­­laun for­­stjóra þeirra 20 félaga sem skráð eru á aðal­­­markað Kaup­hallar Íslands á síð­­asta ári hafi verið rúm­­lega 5,6 millj­­ónir króna. Það er um 8,5 pró­­sent hærri laun en þeir voru með að með­­al­tali árið 2020, þegar þau voru tæp­­lega 5,2 millj­­ónir króna. Alls hækk­­uðu laun þeirra að með­­al­tali um 444 þús­und krón­­ur.

Um er að ræða laun, hlunn­indi og mót­fram­lag í líf­eyr­is­­sjóði. Vert er að taka fram að tvö skráð félög hafa ekki birt árs­­upp­­­gjör sín. Síld­­ar­vinnslan birti ekki fyrr en um miðja þessa viku og því mið­uðu laun for­­stjóra hennar í sam­an­­tekt Kjarn­ans við þau laun sem hann hafði á árinu 2020 og Hagar hafa öðru­­vísi upp­­­gjörsár en önnur skráð félög, sem hefst 1. mars. Því mið­uðu laun for­stjóra Haga við upp­­­gjörsárið 2020/2021. 

­Sam­­kvæmt sam­an­­tekt Kjarn­ans hækk­­uðu 15 for­­stjórar í launum á síð­­asta ári, fjórir lækk­­uðu og, líkt og áður sagði, þá hefur eitt félag ekki skilað árs­­upp­­­gjöri með upp­­lýs­ingum um kjör for­­stjóra. 

Til sam­an­­­burðar má nefna að reglu­­leg laun launa­­fólks í fullu starfi voru að með­­al­tali 670 þús­und krónur á mán­uði árið 2020 og um helm­ingur launa­­fólks var með laun á bil­inu 480 til 749 þús­und krónur á mán­uði, sam­­kvæmt sam­an­­tekt Hag­­stofu Íslands. Tíundi hver launa­­maður var með reglu­­leg laun undir 400 þús­und krónur á mán­uði, en lág­­marks­­laun á Íslandi í fyrra voru 351 þús­und krón­­ur. Laun for­­stjóra skráðra félaga hækk­­uðu því um ein lág­­marks­­laun og 93 þús­und krónum betur á síð­­asta ári að með­­al­tali og voru næstum sext­án­­föld lág­­marks­­laun. Þá á eftir að taka til­­lit til kaupauka­greiðslna og áunn­inna kaup­rétta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar