Lífeyrissjóðir fái heimild til erlendra fjárfestinga strax í ár - Verða að sækja um undanþágu

sedlabankinn.jpg
Auglýsing

Seðla­banki Íslands til­kynnti í dag fyr­ir­hugað sé að heim­ila líf­eyr­is­sjóðum að fjár­festa erlendis síðar á þessu ári. Sam­an­lagt mun heim­ildin vera upp á 10 millj­arða króna og kemur til með að skipt­ast milli sjóð­anna með þeim hætti að ann­ars vegar verður horft til stærðar sem fær 70 pró­sent vægi og hins vegar verði horft til hreins inn­streymis sem fær 30 pró­sent vægi. Útreikn­ingar munu byggja á upp­lýs­ingum úr nýj­ustu árs­reikn­inga­bók Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um líf­eyr­is­sjóði.

Fram kemur í til­kynn­ingu Seðla­bank­ans að líf­eyr­is­sjóðir og vörslu­að­ilar sér­eigna­sparn­aðar verði að sækja um und­an­þágu til að fjár­festa erlend­is.

Líf­eyr­is­sjóðir hafa ekki mátt ráð­ast í nýjar fjár­fest­ingar erlendis frá setn­ingu gjald­eyr­is­haft­anna 2008. Þegar nýjasta afnáms­á­ætlun stjórn­valda var kynnt í júní síð­ast­liðnum var greint frá fyr­ir­ætl­unum um að heim­ila sjóð­unum að fjár­festa fyrir tíu millj­arða króna árlega næstu fimm árin. Til­kynn­ing Seðla­banka Íslands í dag er í takt við það sem kynnt var í júní.

Auglýsing

„Gjald­eyr­is­inn­streymi að und­an­förnu og minni óvissa um þróun greiðslu­jafn­aðar í fram­haldi af setn­ingu laga á Alþingi sem lúta að upp­gjöri búa fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja og kynn­ingu áforma varð­andi svo­kall­aðar aflandskrónur síðar á yfir­stand­andi alm­an­aks­ári skapar svig­rúm til fjár­fest­inga líf­eyr­is­sjóða og ann­arra vörslu­að­ila sér­eign­ar­sparn­aðar í fjár­mála­gern­ingum útgefnum í erlendum gjald­eyri. Í slíkum fjár­fest­ingum felst þjóð­hags­legur ávinn­ingur þar sem líf­eyr­is­sjóð­unum er gert mögu­legt að bæta áhættu­dreif­ingu í eigna­söfnum á sama tíma og dregið er úr upp­safn­aðri erlendri fjár­fest­ing­ar­þörf líf­eyr­is­sjóð­anna þegar fjár­magns­höft verða leyst. Þar með er dregið úr hættu á óstöð­ug­leika í kjöl­far los­unar fjár­magns­hafta,“ segir Seðla­bank­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None