Logi Bergmann segist saklaus af þeim sökum sem á hann hafa verið bornar

„Ekkert er fjær mér en að þröngva annarri manneskju til kynferðislegra athafna,“ segir Logi Bergmann Eiðsson. Hann hefur verið ásakaður um kynferðisbrot.

Logi Bergmann
Auglýsing

„Ég er sak­laus af þeim sökum sem á mig hafa verið bornar und­an­farna daga. Ég hef alla mína ævi haft and­styggð á hvers kyns ofbeldi, staðið með fórn­ar­lömbum þess og stutt bar­áttu þeirra í gegnum tíð­ina. Ekk­ert er fjær mér en að þröngva annarri mann­eskju til kyn­ferð­is­legra athafna.“

Svona hefst stöðu­upp­færsla á Face­book sem fjöl­miðla­mað­ur­inn Logi Berg­mann Eiðs­son birti í kvöld. 

Í henni seg­ist Logi Berg­mann hins vegar vera sekur um að hafa farið yfir mörk í einka­lífi fólks með því að hafa farið inn í her­bergi sem hann átti ekki að fara inn í. „Það var takt­laust og heimsku­legt og ég hef þegar tjáð við­kom­andi að ég taki ábyrgð á því og mér þyki það leitt.“

Hann ætlar ekki að tjá sig meira um mál­ið. 

Ég er sak­laus af þeim sökum sem á mig hafa verið bornar und­an­farna daga. Ég hef alla mína ævi haft and­styggð á hvers...

Posted by Logi Berg­mann on Thurs­day, Janu­ary 6, 2022

Fyrr í dag var greint frá því á  mbl.is. að Logi Berg­­­mann, sem er ann­ar um­­­sjón­­­ar­­­manna Síð­­deg­is­þátt­­­ar­ins á K100, væri kom­inn í leyfi frá störfum hjá Árvakri, útgáfu­­fé­lag­inu sem rekur útvarps­­­stöð­ina, Morg­un­­blaðið og mbl.­­is. 

Hann er einn fjög­­urra manna sem Vítal­ía Laz­­areva hefur ásakað um kyn­­ferð­is­brot. Hún setti fyrst fram ásak­­anir á hendur þremur mann­anna: þeim Ara Edwald, Þórði Má Jóhann­essyni og Hregg­viði Jóns­­syni, á sam­­fé­lags­miðlum í lok októ­ber. Þeir eru allir valda­­miklir í íslensku við­­skipta­­lífi.

Auglýsing
Auk þess hún hefur sett fram ásak­­anir um illa með­­­ferð og fram­komu gagn­vart Arn­­ari Grant, sem hún átti í ást­­ar­­sam­­bandi við. Vítalia hefur meðal ann­­ars sagt Arnar hafa látið sig gera kyn­­ferð­is­­lega hluti við aðra menn gegn vilja henn­­ar. 

Málið vatt upp á sig á þriðju­dag þegar Vítalía steig fram í við­tali við Eddu Falak í hlað­varp­inu Eigin konur og rakti það sem komið hefði fyrir hana.

Hún nefndi menn­ina ekki á nafn og setti auk þess fram ásökun á hendur öðrum manni vegna atviks sem átti sér stað síð­­­­­ar­. Sá maður er Logi Berg­­mann.

Í dag hefur verið greint frá því að allir menn­irnir fjórir sem Vítalía nefndi í stöð­u­­upp­­­færslu sinni í októ­ber hafi stigið til hliðar úr störfum sem þeir gegna vegna máls­ins. Í frétt mbl.is segir að Logi Berg­­mann hafi svo lýst því yfir í upp­­hafi dag­­legs síð­­deg­is­þáttar sem hann stýrir á K100 að hann væri á leið í leyfi. Hinn umsjón­­ar­­maður þátt­­ar­ins, Sig­­urður Gunn­­ar­s­­son, spurði Loga hvernig hann hefði það og Logi svar­að­i:„ Ég hef verið betri, en við ætl­­­um að gera hérna út­varps­þátt. Ég hendi ein­um þætti í loftið núna og svo fer ég kannski í smá frí og við sjá­um bara til hvað ger­ist.“

Hægt er að lesa ítar­­lega umfjöllun Kjarn­ans um málið hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent