Logi Einarsson, sem setið hefur sem formaður Samfylkingarinnar lengur en nokkur annar í rúmlega 22 ára sögu flokksins, eða frá haustinu 2016, mun hætta sem formaður á landsfundi í október. Með því er hann að axla ábyrgð á slælegu gengi flokksins í síðustu þingkosningum þar sem hann tapaði fylgi og fékk einungis 9,9 prósent atkvæða.
Frá þessu greinir Logi í viðtali við Fréttablaðið. „Það var augljóst eftir þingkosningarnar síðastliðið haust að flokkurinn uppskar ekki það sem liðsmenn hans vonuðust eftir og mér fannst þá gefið að ég myndi axla mín skinn […] Ég ætlaði að hætta strax, en ég var hvattur til að bíða með þá ákvörðun, að minnsta kosti um sinn.“
Nú sé hins vegar tímabært að greina frá ákvörðuninni. „Ég er að hætta sem formaður af því að ég er sannfærður um að aðrir geti gert betur en ég.“
Varð óvænt formaður 2016
Logi hefur, líkt og áður sagði, verið formaður flokksins frá árinu 2016. Logi, þá eiginlega algjörlega óþekktur í stjórnmálum utan heimabyggðar, hafði boðið sig fram til varaformanns á landsfundi sama ár og unnið.
Í viðtali við Mannlíf árið 2019 sagði Logi að hann hafi „svo sem ekki verið að sækjast eftir áhrifum eða leiðtogahlutverki en ég enda þar.“ Hann var í kjölfarið kallaður útfararstjóri Samfylkingarinnar en óvæntar kosningar 2017 leiddu til þess að flokkurinn tvöfaldaði fylgi sitt og lifði fyrir vikið af.
Vonbrigðin með árangurinn 2021 voru hins vegar mikil og augljós. Tapað fylgi og næst versta niðurstaðan í 22 ára sögu flokksins staðreynd þrátt fyrir samfellda setu í stjórnarandstöðu frá vorinu 2013.
Kjósendur Samfylkingarinnar voru auk þess þeir kjósendur sem voru minnst ánægðir með frammistöðu formanns þess flokks sem þeir studdu í síðustu kosningabaráttu. Einungis 53,5 prósent þeirra sögðu Loga hafa staðið sig vel.
Á flokksstjórnarfundi í mars síðastliðnum flutti Logi ræðu þar sem hann gerði upp vonbrigðin. „Ef við horfum gagnrýnum augum inn á við er vafalaust hægt að leita skýringa víða; aðferðir við val á lista, mótun skilaboða, samskiptaháttum, mannauð og forystu flokksins. Og þar ber ég að sjálfsögðu ábyrgð.“ Á landsfundi í október 2022 yrðu teknar „stórar ákvarðanir um framtíð flokksins.“
Þessi orð voru túlkuð sem skýr vísbending um að formanns- og forystuskipti væru framundan hjá Samfylkingunni. Það hefur nú verið staðfest.
Kristrún eða Dagur líklegust
Þau Kristrún Frostadóttir, þingmaður flokksins, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, eru talin líklegust til að sækjast eftir formennsku. Dagur hefur ekki viljað segja af eða á um formannsframboð undanfarið og Kristrún fór í hringferð um landið fyrr á þessu árí sem mathor túlkuðu sem undirbúning fyrir formannsframboð.
Kristrún hóf stjórnmálaþáttöku í fyrra en Dagur, sem er fyrrverandi varaformaður Samfylkingarinnar, hefur setið í borgarstjórn í 20 ár.