Úkraína færist skrefi nær Evrópusambandsaðild

„Við viljum að þau upplifi evrópska drauminn með okkur,“ sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, þegar hún greindi frá tillögu framkvæmdastjórnar sambandsins þess efnis að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Auglýsing

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) sam­þykkti í dag að leggja til að Úkra­ína fái form­lega stöðu umsókn­ar­ríkis að sam­band­inu.

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, klædd­ist fána­litum Úkra­ínu þegar hún greindi frá þess­ari ákvörðun fram­kvæmda­stjórn­ar­innar í morg­un, sem metur það svo að Úkra­ína hafi sýnt skýran vilja til að hafa gildi og staðla Evr­ópu í háveg­um. Sagði hún Úkra­ínu­menn til­búna til að „deyja fyrir sjón­ar­mið Evr­ópu“. „Úkra­ína hóf þessa veg­ferð fyrir stríð og síð­ustu átta ár hefur ríkið færst hægt og rólega í átt að sam­band­inu okk­ar,“ sagði von der Leyen.

Auglýsing

Volodomír Zel­en­skí, for­seti Úkra­ínu, fagnar ákvörðun fram­kvæmda­stjórn­ar­innar og segir í færslu á Twitter að með henni fær­ist Úkra­ína nær sigri í stríð­inu við Rúss­land. Hann segir ákvörð­un­ina sögu­lega og þakkar von der Leyen og öðrum stjórn­ar­mönnum fram­kvæmda­stjórn­ar­innar fyr­ir.

Stuðn­ingur fram­kvæmda­stjórn­ar­innar færir Úkra­ínu skrefi nær aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. En leiðin er þó ekki alveg greið.

Verði Úkra­ína gerð að form­legu umsókn­ar­ríki bæt­ist ríkið í hóp fimm ríkja sem nú þegar hafa form­lega stöðu umsókn­ar­rík­is. Það eru Alban­ía, Norð­ur­-Ma­kedón­ía, Svart­fjalla­land, Serbía og Tyrk­land. Mold­óva gæti einnig bæst í hóp­inn þar sem fram­kvæmda­stjórnin lýsti yfir stuðn­ingi við að gera ríkið að form­legu umsókn­ar­ríki líkt og Úkra­ínu á fundi sínum í morg­un.

Leið­toga­ráðið tekur til­lögu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar til umfjöll­unar í næstu viku

Svo að Úkra­ína verði form­legt umsókn­ar­ríki verða leið­togar allra 27 aðild­ar­ríkj­anna að sam­þykkja til­lögu fram­kvæmda­stjórn­ar­inn­ar. Til­lögur fram­kvæmda­stjórn­ar­innar verða teknar fyrir á leið­toga­fundi aðild­ar­ríkj­anna sem fram fer í Brus­sel í næstu viku. Leið­togar Frakk­lands, Þýska­lands og Ítalíu hafa nú þegar lýst yfir stuðn­ingi við að gera Úkra­ínu að form­legu umsókn­ar­ríki.

Að­ild­ar­um­sókn Úkra­ínu að Evr­ópu­sam­band­inu var sam­þykkt með yfir­gnæf­andi meiri­hluta á Evr­ópu­þing­inu nokkrum dögum eftir að inn­rás Rússa í Úkra­ínu hófst í lok febr­ú­ar. Von der Leyen sagði inn­rás­ina marka nýtt upp­haf í Evr­ópu en ljóst er að aðild­ar­ferlið fram undan verður langt og strangt, óháð stríðs­á­tök­um.

Úkra­ína mun til að mynda þurfa að gera ýmsar breyt­ing­ar, allt frá dóms­kerf­inu til spill­ingar í stjórn­kerf­inu.

Umsókn­­ar­­ferli í Evr­­ópu­­sam­­bandið er langt og strangt og getur tekið allt að ára­tug líkt og dæmin sanna. Pól­land sótti til að mynda fyrst um árið 1994 en fékk inn­­­göngu for­m­­lega tíu árum síð­­­ar, 2004.

Stjórn­völd í Rúss­landi fylgj­ast náið með til­raunum Úkra­ínu til að verða hluti af Evr­ópu­sam­band­inu. Dmi­try Peskov, tals­maður stjórn­valda í Kreml, segir þró­un­ina „krefj­ast náinnar athygli, þar sem við erum með­vituð um umræð­una í Evr­ópu um að efla varnir Evr­ópu­sam­bands­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent