Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að Norðurlöndin verði að bregðast við áskorunum í loftslagsmálum og breyttu landslagi í öryggismálum „af fullum þunga“. Aðgerðir kalli á innleiðingu tillagna skýrslu Björns Bjarnasonar, sem kom út í fyrra, í æðstu stjórnsýslu, bæði hjá fagráðuneytum og utanríkisráðuneytum. Þær þurfi einnig að samþætta samstarfi þjóðanna við alþjóðastofnanir og önnur ríki.
Þetta kom fram í máli ráðherrans í dag á þingi Norðurlandaráðs sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn.
„Norrænt samstarf er einstakt og sem ríkjahópur eiga Norðurlöndin sterka rödd á alþjóðavettvangi sem gerir þeim kleift að hafa umtalsverð áhrif í fjölþjóðlegu samstarfi,“ sagði hann.
Árangur næst einungis með öflugri samvinnu
Vitnaði Guðlaugur Þór, eins og áður segir, í skýrslu Björns Bjarnasonar sem kom út á síðasta ári og sagði hann skýrsluna varpar ljósi „á nýjan kafla í norrænu samstarfi þar sem samvinna í öryggis- og utanríkismálum þarf í auknum mæli að taka mið af breyttu öryggisumhverfi og þeim áskorunum sem blasa við okkur í dag“.
„Loftlagsbreytingar og fjölþáttaógnir á borð við netárásir og upplýsingaóreiðu grafa nú undan þeim stöðugleika sem við höfum búið við og ekkert ríki getur eitt og sér tekið á þeim áskorunum. Árangur næst einungis með öflugri samvinnu og því er mikilvægt að við sameinum krafta okkar og byggjum á sterkum stoðum norrænnar samvinnu.
Við eigum þegar farsælt samstarf á mörgum málefnasviðum sem tillögur skýrslunnar fjalla um, en það má efla enn frekar með ýmsum hætti. Við getum til að mynda lagt enn meira af mörkum á sviði loftslagsmála, til dæmis með auknu samráði á sviði hafrannsókna og útflutningi á grænum lausnum,“ sagði hann.
Ákall á ríki heims að þau sýni aukinn metnað í loftslagsaðgerðum
Ráðherrann hélt áfram að tala um skýrslu Björns Bjarnasonar. „Auk loftslagsmála, fjalla tillögurnar um loftslagsöryggi og þróunarmál, viðbúnað vegna heimsfaraldra, samstarf um utanríkisþjónustu og rannsóknir á sviði utanríkis- og öryggismála, svo fátt eitt sé nefnt. Allt eru þetta mikilvæg málefni þar sem norræn samvinna getur reynst dýrmæt eins og reynsla síðastliðinna sjö áratuga hefur sýnt okkur.“
Vék hann máli sínu að loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir.
„Væntingar til útkomu hennar eru miklar og ákall er á ríki heims að þau sýni aukinn metnað í loftslagsaðgerðum. Einnig má merkja nýjar áherslur í starfi Norrænu ráðherranefndarinnar og almennt í norrænu samstarfi. Bjarnason skýrslan er mikilvægt tól í þessu samhengi og ég vil að lokum undirstrika þýðingu hennar fyrir norrænt samstarf.
Við megum þó engan tíma missa,“ sagði Guðlaugur Þór að lokum.