Allir eftirstandandi meðlimir stjórnar Eflingar nema þrír, alls ellefu manns, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau hvetja Guðmund Baldursson stjórnarmann til að segja af sér stjórnarmennsku. Þau hvetja hann auk þess til að „láta verða af hugmyndum sínum um stofnun nýs klofnings-stéttarfélags.“
Guðmundur sendi sjálfur frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem hann sagði að Sólveig Anna Jónsdóttir fráfarandi formaður Eflingar hafi „haldið lykilupplýsingum leyndum frá stjórninni til að hylma yfir vanlíðan starfsfólks á skrifstofu Eflingar“ með því að neita að kynna fyrir stjórninni starfslokasamning við fyrrverandi skrifstofustjóra Eflingar í upphafi þessa árs.
Bæði Sólveig Anna og Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, hafa tilkynnt uppsagnir sínar vegna málsins. Guðmundur hefur einnig hvatt varaformann Eflingar, Agnieszku Ewu Ziółkowska, til að segja af sér.
Hröð atburðarás síðustu daga
Það logar allt í illdeilum innan Eflingar, sem er næst stærsta stéttarfélag landsins, sem stendur. Forsaga málsins er sú að í júní samþykktu starfsmenn Eflingar ályktun sem hefur ekki verið birt opinberlega. Í henni voru stjórnendur stéttarfélagsins gagnrýndir með ýmsum hætti fyrir framkomu sína gagnvart starfsfólki. Trúnaðarmenn starfsmanna undirrituðu ályktunina og hún var sett fram fyrir hönd starfsmanna.
Vegna þessa ávarpaði Sólveig Anna starfsmenn á föstudagsmorgun og bað þá um að draga til baka ályktunina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.
Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósanngjarnt að stjórnendur veltu ábyrgð á innanhúsmálum yfir á sig.
Í kjölfarið sagði Sólveig Anna af sér.
Mótmæla orðum Guðmundar
Í yfirlýsingu stjórnarmannanna ellefu sem send var út í kvöld segir að trúnaðarmenn starfsfólks á skrifstofu Eflingar hafi aldrei lagt fram við stjórn félagsins ályktun sína frá því í júní á þessu ári. „Við teljum eðlilegt að fjalla um mál séu þau lögð fyrir stjórn, en ekki að einstakir stjórnarmenn krefjist umfjöllunar um mál sem varða starfsmenn og framlagningar gagna þeim tengd án þess að aðilar máls hafi óskað þess. Slík vinnubrögð eru að okkar mati ekki eðlileg heldur ofríki. Guðmundur Baldursson er frjáls að sínum skoðunum á því hvað hann vill að stjórn félagsins hlutist til um, en hann er þó bundinn af lýðræðislegu meirihlutasamþykki varðandi ákvarðanir stjórnar rétt eins og aðrir stjórnarmenn. Að sama skapi er lítið við því að gera þótt kröfur Guðmundar til ASÍ og SGS um íhlutun þessara sambanda í störf stjórnar Eflingar hafi reynst tilhæfulausar. Það stoðar lítt fyrir hann að barma sér yfir því í fjölmiðlum.“
Stjórnarmeirihlutinn mótmælir því sem þau kalla niðrandi orðum Guðmundar um kynningu mannauðsstjóra á stjórnarfundi í sumar. „Sú kynning var vönduð og til marks um gott starf í þeim málum á skrifstofunni. Við höfum á síðustu árum oft fengið kynningar frá stjórnendum vinnustaðarins þar sem óskað hefur verið eftir stuðningi og samþykki okkar fyrir ýmsum umbótum í starfsmannamálum. Dæmi um slíkt eru stytting vinnuvikunnar í tvígang, ráðning mannauðsstjóra, smíði starfsmannastefnu og starfsmannahandbókar, mánaðarlegar starfsánægjukannanir, kosning trúnaðarmanna sem var óheimil í tíð fyrri formanns, mánaðarlegir starfsmannafundir og regluleg starfsmannasamtöl. Við höfum ávallt stutt og samþykkt slíkar umbætur enda hefur okkur sýnst vel að þeim staðið og viljum allt hið besta fyrir starfsfólk Eflingar.“
Ásaka Guðmund um klofningstilburði
Þau segjast líka mótmæla framgöngu Guðmundar á opinberum vettvangi þar sem hann vísi meðal annars í umræður á stjórnarfundum, sem sé trúnaðarbrestur við stjórn félagsins.
„Guðmundar hefur áður ófrægt okkur, félaga sína í stjórn félagsins, á opinberum vettvangi með ásökunum um við berum hag félagsmanna ekki fyrir brjósti. Guðmundur hefur gengið svo langt að kenna stjórn Eflingar um það að hópbifreiðastjórar hafi mætt illa á fund sem starfsfólk félagsins varði mikilli orku í að halda að ósk hans. Guðmundur mætti sjálfur ekki á þann fund, ekki frekar en aðra fundi með félagsmönnum Eflingar þar sem hann hefur iðulega verið fjarverandi.“Að lokum segja þau að Guðmundur hafi lýst yfir þeirri skoðun sinni að hagsmunum félagsmanna Eflingar sé betur borgið með því að kljúfa sig út úr félaginu. „Hann hefur lýst yfir ásetningi um að beita sér fyrir stofnun klofningsfélags í þessum tilgangi. Hann hefur haft þessi ummæli í frammi í opnum hópum á samfélagsmiðlum þar sem fulltrúar atvinnurekenda fjölda Eflingarfélaga eru meðlimir. Að okkar mati þarf ekki að fjölyrða frekar um hollustu Guðmundar við Eflingu og félagsmenn Eflingar. Við hvetjum Guðmund til að segja sig úr stjórn Eflingar og láta verða af hugmyndum sínum um stofnun nýs klofnings-stéttarfélags.“
Undir yfirlýsinguna skrifa:
Agnieszka Ewa Ziółkowska
Ólöf Helga Adolfsdóttir
Eva Ágústsdóttir
Daníel Örn Arnarsson
Felix Kofi Adjahoe
Innocentia Fiati
Kolbrún Valvesdóttir
Michael Bragi Whalley
Stefán E. Sigurðsson
Zsófía Sidlovits
Jóna Sveinsdóttir
Þeir stjórnarmenn sem skrifa ekki undir hana, auk Guðmundar, eru:
Úlfar Snæbjörn Magnússon
Saviour De-Graft Ametefio