Meta hvort aðstoðarmanni ráðherra sé heimilt að sitja í stjórn Ríkisútvarpsins

Aðstoðarmaður dómsmálaráðherra sem hóf störf í vikunni situr einnig í stjórn Ríkisútvarpsins. Hann hefur tilkynnt forsætisráðuneytinu stjórnarsetuna sem mun meta hvort honum verði áfram heimilt að sitja í stjórn félagsins.

Ingvar Smári Birgisson, aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, á einnig sæti í stjórn RÚV.
Ingvar Smári Birgisson, aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, á einnig sæti í stjórn RÚV.
Auglýsing

Ingvar Smári Birg­is­­son, aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra, hefur til­kynnt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um stjórn­ar­setu sína í Rík­is­út­varp­inu og „hafið sam­tal“ um hvort honum sé heim­ilt að sitja í stjórn félags­ins. Hann gerir ráð fyrir að boða vara­mann í sinn stað á stjórn­ar­fundi hjá Rík­is­út­varp­inu á meðan beiðnin er til með­ferðar hjá ráðu­neyt­inu.

Ingvar tók við af Teiti Birni Ein­ars­syni sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra fyrir helgi. Teitur Björn, sem hefur verið Jóni til aðstoðar frá því í febr­úar hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem eru þá orðnir þrír tals­ins.

­Síð­­­ast starf­aði Ingvar sem lög­­fræð­ingur hjá Íslensku lög­­fræð­i­­stof­unni, en hann lauk meist­­ara­­prófi í lög­­fræði frá Háskóla Íslands árið 2019 og fékk mál­­flutn­ings­rétt­indi fyrir hér­­aðs­­dómi árið 2019. Fyrr á þessu ári tók Ingvar sæti í stjórn Rík­­is­út­­varps­ins, til­nefndur af Alþingi.

For­sæt­is­ráðu­neytið kannar hvort stjórn­ar­setan stang­ist á við lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum

Í sam­þykktum fyrir Rík­is­út­varpið er fjallað um skyldur stjórnar og stjórn­ar­manna þar sem segir að stjórn­ar­menn skuli „forð­ast hvers kyns hags­muna­á­rekstra.“ Ingvar segir að ákvæðið meini honum ekki að sitja í stjórn Rík­is­út­varps­ins en til skoð­unar sé hvort stjórn­ar­seta hans stang­ist á við lög um varnir gegn hags­muna­á­­rekstrum í Stjórn­­­ar­ráði Íslands. Í lög­un­um, sem tóku gildi í upp­hafi síð­asta árs, segir að störf æðstu stjórn­­enda og aðstoð­­ar­­manna ráð­herra telj­ist full störf. Þeim sé óheim­ilt að sinna auka­­störfum sam­hliða störfum í Stjórn­­­ar­ráði Íslands.

Auglýsing
Ingvar segir í sam­tali við Kjarn­ann að hann verði í leyfi frá störfum sem lög­maður á meðan hann gegnir starfi aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra. Þá hefur hann til­kynnt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um stjórn­ar­setu sína í Rík­is­út­varp­inu og mun skila inn beiðni um und­an­þágu til ráðu­neyt­is­ins á næstu dög­um.

Sam­kvæmt lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands getur for­sæt­is­ráð­herra veitt und­an­þágu „ef fyr­ir­hugað auka­starf telst til mann­úð­ar­starfa, kennslu- eða fræði­starfa, vís­inda­rann­sókna, list­sköp­unar eða ann­arra og til­fallandi starfa svo fremi að það hafi ekki áhrif á störf við­kom­andi í Stjórn­ar­ráði Íslands og greiðslur fyrir auka­störfin telj­ast innan hóf­legra marka“.

Beiðni um und­an­þágu skal afgreiða innan 30 daga frá því að hún berst. Ingvar segir í sam­tali við Kjarn­ann treysta for­sæt­is­ráðu­neyt­inu vel fyrir því að meta það gaum­gæfi­lega hvort seta hans í stjórn Rík­is­út­varps­ins flokk­ist sem hags­muna­á­rekst­ur. Þar til nið­ur­staða liggi fyrir gerir hann ráð fyrir því að boða vara­mann í sinn stað á stjórn­ar­fundi hjá Rík­is­út­varp­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent