Mikill hagnaður hjá norsku bönkunum í fyrra

Líkt og íslensku bankarnir skiluðu norskir bankar miklum hagnaði af starfsemi sinni í fyrra. Búist er við áframhaldandi hagnaði samhliða hærri vöxtum.

Höfuðstöðvar DNB í Osló, Noregi.
Höfuðstöðvar DNB í Osló, Noregi.
Auglýsing

Norska banka­kerfið skil­aði að öllum lík­indum meiri hagn­aði í fyrra en hið íslenska, ef miðað er við lands­fram­leiðslu ríkj­anna tveggja. Hagn­aður stærsta banka lands­ins, DNB, er met­inn á 360 millj­arða íslenskra króna, en búist er við að rekstur hans bæt­ist enn frekar í kjöl­far, meðal ann­ars vegna stýri­vaxta­hækk­ana þar í landi.

Líkt og Kjarn­inn hefur áður fjallað um skil­uðu þrír stærstu bank­arnir hér­lendis sam­tals 81 millj­arðs króna hagnað í fyrra, en það er mesti hagn­að­ur­inn sem mælst hefur hjá þeim í sjö ár. Ef miðað er við áætl­anir um að hag­vöxtur hafi verið 4,1 pró­sent í fyrra má gera ráð fyrir að hagn­að­ur­inn hafi numið 2,5 pró­sentum af lands­fram­leiðslu.

Auglýsing

Á vef hag­stofu Nor­egs, SSB, má finna rekstr­ar­tölur frá norska banka­kerf­inu. Hagn­að­ar­tölur eftir skatt eru þó ekki aðgengi­legar fyrir síð­ustu árin, en hægt er að áætla þær út frá með­al­skatt­byrði bank­anna á árunum á und­an. Á mynd hér að neðan má svo sjá hagnað íslensku og norsku bank­anna sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu ríkj­anna tveggja.

Mynd: Kjarninn. Heimildir: Hagstofan, SSB og efnahagsreikningar bankanna.

Sam­kvæmt mynd­inni er áætl­aður hagn­aður norska banka­kerf­is­ins senni­lega um helm­ingi meiri en á Íslandi, ef tekið er til­lit til stærðar hag­kerf­anna beggja. Hagn­aður íslensku bank­anna hefur verið mun minni að umfangi en hjá þeim norsku síð­ustu sjö árin, en á árunum 2012-2015 var því öfugt far­ið.

Aukið svig­rúm vegna hærri vaxta

Stærsti við­skipta­banki Nor­egs, DNB, skil­aði frá sér rekstr­ar­nið­ur­stöðum fyrir árið 2021 á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku. Sam­kvæmt þeim hagn­að­ist bank­inn um rúma 25 millj­arða norskra króna af starf­semi sinni, en það jafn­gildir um 360 millj­örðum íslenskra króna.

Bank­inn náði þó ekki eigin mark­miði um 12 pró­senta ávöxtun eigin fjár, en hún nam 10,7 pró­sentum á árinu. Í nýbirtri fjár­festa­til­kynn­ingu stefndi hann hins vegar að því að ná mark­mið­innu á næsta ári, vegna batn­andi mark­aðs­skil­yrða.

Bank­inn nefnir sér­stak­lega fyr­ir­hug­aðar stýri­vaxta­hækk­anir á árinu sem ástæðu fyrir aukna ávöxtun eigin fjár, en hann segir þær geta leitt til meiri tekna af útlána­starf­semi sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent