Þingi ASÍ frestað um sex mánuði

Eftir viðburðarríkan gærdag á 45. þingi ASÍ hefur tillaga breiðs hóps þingfulltrúa þess efnis að fresta þinginu um sex mánuði verið samþykkt.

45. þing ASÍ fer fram á Hótel Nordica. Tillaga þess efnis að þinginu verði frestað um sex mánuði verður mögulega lögð fram á þinginu í dag.
45. þing ASÍ fer fram á Hótel Nordica. Tillaga þess efnis að þinginu verði frestað um sex mánuði verður mögulega lögð fram á þinginu í dag.
Auglýsing

Til­laga breiðs hóps þing­full­trúa sem situr þing Alþýðu­sam­bands Íslands þess efnis að fresta þing­inu um sex mán­uði hefur verið sam­þykkt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Þing ASÍ hófst að nýju klukkan tíu í morgun eftir við­burð­ar­ríkan gær­dag þar sem Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, dró fram­boð sitt til for­seta til baka.

Við upp­haf ann­ars dags 45. þings ASÍ í gær dag þótti næsta víst að Ragnar Þór yrði næsti for­­seti Alþýð­u­­sam­­bands­ins, en svo verður ekki. Í hópi þeirra tuga full­­trúa sem skynd­i­­lega gengu af þing­inu á fjórða tím­­anum í gær voru auk Ragnar Þórs þau Sól­­veig Anna Jóns­dóttir for­­maður Efl­ingar og Vil­hjálmur Birg­is­­son for­­maður Starfs­­greina­­sam­­bands­ins og VLFA, sem fyrir gær­dag­inn þóttu lík­­­leg­ust til þess að verða 2. og 3. vara­­for­­seta sam­­bands­ins.

Auglýsing

Sam­kvæmt dag­skrá þings­ins átti stjórn­ar­kjör að fara fram eftir hádegi, en svo verður ekki.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans vann hópur fólks, úr ýmsum félög­um, sem sitja þing­ið, til­lögu þess efnis að þingi ASÍ yrði frestað um sex mán­uði. Sú til­laga hefur nú verið sam­þykkt, sam­kvæmt sömu heim­ild­um.

Stjórn­ar­kjör getur farið fram þó vanti helm­ing þing­full­trúa

Eftir að fjöldi félags­manna VR og Efl­ingar gekk út af þing­inu í gær var nokkur óvissa um hvort kosn­ingar í mið­stjórn og emb­ætti for­seta ASÍ gætu farið fram.

Sam­kvæmt þing­sköpum ASÍ er það grunn­reglan að atkvæða­greiðslur geti ekki farið fram um til­lögur nema minnst helm­ingur þing­full­trúa sé á staðn­um. Atkvæða­greiðsla getur þó talist gild ef þing­for­seti til­kynnir sér­stakan tíma fyrir atkvæða­greiðslu, með minnst 30 mín­útna fyr­ir­vara.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent