Næturstrætó er hættur akstri

Næturstrætó ók sína síðustu ferð, í bili, um helgina. Næturstrætó var á meðal kosningaloforða hjá Framsókn og Pírötum fyrir kosningarnar síðasta vor.

Strætó Mynd: Arnar Þór
Auglýsing

Akstri næt­ur­strætó hefur verið hætt. Næt­ur­strætó hefur gengið frá því í júlí en vænt­ingar um far­þega­fjölda hafa ekki stað­ist þrátt fyrir að búist hafi verið við auknum fjölda nú í haust þegar starfs­fólk kom úr sum­ar­leyfum og skólar hófust á ný, að því er segir í til­kynn­ingu frá Strætó.

Næt­ur­strætó var á meðal kosn­inga­lof­orða Fram­sókn­ar­flokks­ins og Pírata í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor.

Stjórn Strætó sam­þykkti þann 4. júlí að hefja akstur næt­ur­strætó um helgar til reynslu út sept­em­ber­mán­uð. Um er að ræða leiðir 101, 102, 103, 104, 105, 106 og 107.

Auglýsing

Ekki er verið að nota næturakstur Strætó eins mikið og vonir stóðu til, sam­­kvæmt kynn­ingu sem stjórn­­­ar­­menn í Strætó bs. fengu frá fyr­ir­tæk­inu á stjórn­­­ar­fundi í lok ágúst.

Í kynn­ing­unni kom fram að á bil­inu 300-340 far­þegar hefðu verið að nýta sér akst­­ur­inn á hverju kvöldi fyrstu fjórar helg­­arnar sem næt­­ur­­strætó keyrði, eða um 14-16 manns að með­­al­tali í hverja næt­­ur­­ferð sem ekin er.

Strætó segir í sam­an­­tekt um næturakst­­ur­inn að not­k­unin hafi verið „þokka­­leg, en undir vænt­ingum miðað við óskir um end­­ur­vakn­ingu næt­­ur­­leiða“, en nokkuð ákall var uppi um það að Strætó myndi hefja akstur að næt­­ur­lagi á ný um helgar eftir að skemmt­ana­líf færð­ist í samt horf við aflétt­ingu sam­komu­tak­­mark­ana vegna kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins.

Stjórn Strætó hefur nú sam­þykkt að ekki sé rétt­læt­an­legt að halda áfram akstri næt­ur­strætó um helgar nú að loknum reynslu­tíma og verður því þeirri þjón­ustu hætt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki